Innlent

Óvenju mikið drykkjulæti í nótt

Óvenju mikið var um drykkjulæti og óspektir á höfuðborgarsvæðinu í nótt og þurfti lögregla að taka sex menn úr umferð og vista þá í fangageymslum. Hvað eftir annað var lögregla kölluð út vegna hávaða í heimahúsum og sumstaðar voru einhverjir pústrar, en þó hvergi alvarlegir.

Að sögn lögreglu færist það heldur í vöxt að fólk fái sér í glas á fimmtudagskvöldum auk þess sem mánaðamót eru nú nýafstaðin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×