Telur óskynsamlegt að kaupa Hitaveitu Hveragerðis til baka 11. september 2010 12:07 Róbert Hlöðversson, bæjarfulltrúi A-listans. A-listinn er í minnihluta í Hveragerði.
Meirihluti Bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar hefur óskað eftir að hefja viðræður við Orkuveituna um að kaupa Hitaveitu Hveragerðis til baka á sanngjörnu verði. Minnihluti bæjarstjórnar telur óskynsamlegt að bæjarfélagið skuldsetji sig enn frekar. Tillagan var samþykkt á bæjarstjórnarfundi á fimmtudaginn. Bæjarstjóri, forseti bæjarstjórnar og lögmaður hefja nú viðræður við stjórn Orkuveitu Reykjavíkur til að kanna grundvöll þess að Hitaveitunni verði skilað aftur til Hvergerðinga gegn eðlilegu endurgjaldi, eins og það er orðað í fundargerð Sjálfstæðismanna. Hitaveitan var seld til Orkuveitunnar sumarið 2004, en salan var umdeild á sínum tíma. Í greinargerð meirihluta bæjarstjórnar segir að með fordæmalausri ákvörðun um hækkun á heitu vatni um 35% sé Orkuveitan að varpa ábyrgðalausri skuldasöfnun sinni yfir á íbúa Hveragerðisbæjar, sem engan þátt hafi átt í henni. Meirihlutinn telur að hagsmunir bæjarbúa hafi verið gróflega fyrir borð bornir með sölunni á sínum tíma og vill fá Hitaveituna aftur í eigu bæjarins. Hveragerðisbær hefur forkaupsrétt komi til sölu á Hitaveitunni frá Orkuveitu Reykjavíkur.Ábyrgðarleysi að skuldsetja bæjarfélagið Minnihlutinn í bæjarstjórn sat hjá í atkvæðagreiðslunni og telur að sjálfstæðismenn sýni mikið ábyrgðaleysi að ætla að skuldsetja bæjarfélagið enn frekar með kaupum á hitaveitunni. „Við erum að nálgast eða sennilega komin yfir hlutfallið sem að eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sett varðandi skuldsetningu sveitarfélaga," segir Róbert Hlöðversson, fulltrúi A-listans í bæjarstjórn Hveragerðis. Skuldir bæjarins nemi 165% af árstekjum. „Við erum að greiða sama verð fyrir orkuna og í Reykjavík og við teljum ekki ástæðu til þess að kaupa þessa hitaveitu á þeim forsendum, að við sjáum fram á að bæjarbúar fái lægra orkuverð," segir Róbert.
Tengdar fréttir Vilja kaupa hitaveitu til baka Bæjarstjórn Hveragerðis vill kaupa til baka hitaveitu bæjarins sem seld var Orkuveitu Reykjavíkur árið 2004. 11. september 2010 08:00 Hvergerðingar vilja kaupa hitaveituna af OR Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðis vill hefja viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur um að kaupa aftur Hitaveitu Hveragerðis sem Orkuveitan keypti árið 2004. Bæjarstjóri Hveragerðis segir það óásættanlegt að íbúar Hveragerðis þurfi að taka á sig gjaldskrárhækkanir til að greiða niður óráðsíu í rekstri Orkuveitunnar. 8. september 2010 12:31 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira
Vilja kaupa hitaveitu til baka Bæjarstjórn Hveragerðis vill kaupa til baka hitaveitu bæjarins sem seld var Orkuveitu Reykjavíkur árið 2004. 11. september 2010 08:00
Hvergerðingar vilja kaupa hitaveituna af OR Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðis vill hefja viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur um að kaupa aftur Hitaveitu Hveragerðis sem Orkuveitan keypti árið 2004. Bæjarstjóri Hveragerðis segir það óásættanlegt að íbúar Hveragerðis þurfi að taka á sig gjaldskrárhækkanir til að greiða niður óráðsíu í rekstri Orkuveitunnar. 8. september 2010 12:31