Innlent

Vilja kaupa hitaveitu til baka

Orkuveita Reykavíkur hefur einkarétt á sölu heits vatns og gufu í Hveragerði. Fréttblaðið/Valli
Orkuveita Reykavíkur hefur einkarétt á sölu heits vatns og gufu í Hveragerði. Fréttblaðið/Valli
Bæjarstjórn Hveragerðis vill kaupa til baka hitaveitu bæjarins sem seld var Orkuveitu Reykjavíkur árið 2004. Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks segja söluna hafa verið afar umdeilda á sínum tíma. Veitukerfið hafi verið selt og veittur einkaréttur á sölu og dreifingu á heitu vatni, einnig einkaréttur til virkjunar jarðhita í eignarlandi bæjarins. Nú ætli Orkuveitan „að varpa ábyrgðarlausri skuldasöfnun“ yfir á Hvergerðinga með 35 prósenta hækkun á heitu vatni. Hagsmunir bæjarbúa hafi verið „gróflega fyrir borð bornir“ með sölunni.

Minnihluti A-listans segir það dylgjur að vegið hafi verið að hagsmunum bæjarbúa með sölunni. Hitaveitan hafi verið rekin með tapi og mjög dýrar endurbætur verið yfirvofandi. Peningarnir hafi farið í að borga niður erlendar skuldir. Nú stefni skuldsetning í að verða 165 prósent af tekjum bæjarins:

„Í ljósi þessarar erfiðu skuldastöðu telja bæjarfulltrúar A-listans sjálfstæðismenn sýna mikið ábyrgðarleysi að ætla að skuldsetja bæjarfélagið enn frekar með kaupum á hitaveitunni og þannig varpa ábyrgðarlausri skuldasöfnun yfir á íbúa Hveragerðisbæjar,“ segir í bókun A-listans. - gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×