Innlent

Íslenskir strætóbílstjórar í öðru sæti

Íslensku vagnstjórarnir hrepptu annað sætið.
Íslensku vagnstjórarnir hrepptu annað sætið.
Norðurlandamót strætisvagnabílstjóra í ökuleikni fór fram um síðustu helgi og hrepptu íslenskir strætisvagnabílstjórar annað sætið í keppninni í ár. Sex keppendur eru í hverju liði og ekur hver keppandi brautina tvisvar.

„Mælt er bæði hversu fljótir keppendur eru að aka í gegnum þrautirnar og eins hversu margar villur þeir gera í akstrinum. Auk keppni milli landa er jafnframt keppt í árangri einstaklinga og þar var Timo Kettunen frá Finnlandi hlutskarpastur, en hann hefur í áraraðir verið ofarlega á blaði á Norðurlandamótunum,“ segir í tilkynningu.

Keppnin fór fram í Finnlandi að þessu sinni. Næst fer keppnin fram í Svíþjóð 2011 og stefnir íslenska liðið að  ví að ná titlinum af Norðurlandameisturunum á þeirra heimavelli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×