Umboðsmaður krefur LÍN svara 1. júlí 2010 12:02
Umboðsmaður Alþingis hefur sent Lánasjóði Íslenskra námsmanna fyrirspurn vegna innheimtuaðgerða sjóðsins. Sjóðurinn stefndi skuldara og ábyrgðarmanni hans, þrátt fyrir að maðurinn hefði fengið úrskurð um heimild til greiðsluaðlögunar. Fréttastofa sagði frá máli Gunnars Kristins Þórðarsonar undir lok maí. Lánasjóður íslenskra námsmanna gaf út stefnu á hendur Gunnari og ábyrgðarmanni lánsins, föður hans þann 29. apríl síðastliðinn vegna vanskila. Daginn eftir var manninum veitt heimild til greiðsluaðlögunar. Í tölvupósti sem LÍN sendi manninum kemur fram að sjóðurinn stefni ekki skuldurum í greiðsluaðlögun. Þar sem stefnan var gefin út daginn áður en heimild til greiðsluaðlögunar var veitt vildi sjóðurinn þó ekki draga stefnuna til baka. Sjóðurinn bauð manninum þó að óska eftir frestun málsins við þingfestingu þess í upphafi mánaðar. Gunnar kvartaði undan þessum innheimtuaðgerðum við Umboðsmann Alþingis, meðal annars á þeim forsendum að þó stefnan hafi verið gefin út áður en honum var veitt heimild til greiðsluaðlögunar, hafi hún verið birt honum eftir það. Málið hafi hafist með birtingu stefnunnar, en ekki útgáfu hennar. Umboðsmaður Alþingis hefur nú aðhafst í málinu og sent sjóðnum fyrirspurn vegna málsins, sem fréttastofa hefur undir höndum. Þar óskar hann upplýsinga um hvenær stefnan var birt og hvernig það geti samræmst fyrrnefndum verklagsreglum sjóðsins að birta skuldara stefnu eftir að hann hefur fengið heimild til greiðsluaðlögunar. Haraldur Guðni Eiðsson, stjórnarformaður sjóðsins, segir í samtali við fréttastofu að sjóðnum hafi verið veittur frestur til svars vegna sumarleyfa, en gerir ráð fyrir að svör verði send í dag.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Fleiri fréttir Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný Sjá meira