Reykjanesbær reynir að semja um risalán Valur Grettisson skrifar 22. september 2010 13:01 Árni Sigfússon stendur í ströngu þessa dagana.
Tveir starfsmenn þýsk-írska bankans Depfa, eru hér á landi til þess að semja við Reykjanesbæ um greiðslu á tæplega tveggja milljarða króna skuld bæjarins. Starfsmennirnir komu hingað til lands í síðustu viku. „Við erum í viðræðum við þá varðandi lánið," segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, en hann segir að upphaflega hafi bankinn ekki viljað semja um skuldina sem nemur 1,8 milljarð. Sú afstaða hafi þó breyst og því hafi tveir starfsmenn bankans verið sendir hingað til lands. Árni segir ekkert sérstakt að frétta af viðræðunum annað en að þær séu í gangi. Hann treysti sér ekki til þess að leggja mat á það hvort þær gangi vel eða ekki. Reykjanesbær á undir högg að sækja vegna erfiðrar fjárhagsstöðu. Ekki bætti úr skák að fyrrgreinda lánið gjaldféll í ágúst. Bærinn er að fara í víðtækar niðurskurðaraðgerðir en hart hefur verið deilt um þær innan bæjarstjórnar. Engar tillögur þess eðlis hafa þó litið dagsins ljós. Eftirlitsnefnd sveitarfélaga sendi Reykjanesbæ aðvörun en bæjarstjórn þarf að svara bréfinu fyrir 30. september. Sveitafélagið þarf að óska sjálft eftir aðstoð nefndarinnar lendi það í slíkum hrakningum að það geti ekki greitt af lánum sínum. Fari viðræður á milli starfsmanna bankans og Reykjanesbæjar út um þúfur aukast líkurnar talsvert á að sveitafélagið þurfi að óska eftir aðstoð nefndarinnar.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira