Allt að 2 vikna bið eftir heimilislækni 16. ágúst 2010 06:00 Íbúar í sumum hverfum í Reykjavík þurfa að bíða lengi eftir tímum hjá heimilislæknum á meðan íbúar annarra hverfa, sem og í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarinnar, geta fengið tíma fyrr.Fréttablaðið/Stefán
Allt að tveggja vikna bið er eftir tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu um þessar mundir, samkvæmt óformlegri könnun Fréttablaðsins. Íbúar í sumum hverfum komast strax að en aðrir geta þurft að bíða lengi. Afar misjafnt er eftir heilsugæslustöðvum hversu lengi fólk þarf að bíða eftir því að fá tíma. Á nær helmingi heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu var ýmist enginn biðtími, eða sjúklingar gátu fengið tíma eftir einn virkan dag. Á öðrum stöðvum var biðtíminn níu eða tíu virkir dagar, eða um tvær vikur. Í könnun Fréttablaðsins, sem gerð var síðastliðinn föstudag, var hringt í allar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu og kannað hvenær næst væri laus tími hjá einhverjum heimilislækni. Á fjórum heilsugæslustöðvum af sextán var biðtíminn lengri en ein vika, eins og sjá má í meðfylgjandi töflu. Meðal biðtíminn var ríflega þrír virkir dagar. „Það er ófullnægjandi að biðtíminn skuli geta verið svona langur,“ segir Lúðvík Ólafsson, lækningaforstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hann segir að biðtíminn mælist yfirleitt minni í reglulegum könnunum sem heilsugæslan gerir á þjónustu. Lúðvík bendir á að yfirleitt geymi heilsugæslustöðvarnar einhverja læknatíma fyrir sjúklinga sem ekki geti beðið, og taka verði það með í reikninginn. „Auðvitað vildi maður helst að biðtíminn væri sem stystur,“ segir Lúðvík. Hann segir það alltaf vandamál þegar biðtíminn sé langur að nýting tímanna sé verri, enda gleymi fólk að mæta, eða því batni og gleymi að afpanta tímann. „Það er grundvallarvandi hjá okkur að það eru of fáir læknar til að sinna heimilislækningum á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Lúðvík. Sú staðreynd sé þekkt að hlutfallslega færri læknar séhæfi sig í heimilislækningum hér á landi en á nágrannalöndunum. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Fleiri fréttir Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Sjá meira