Innlent

Allt að 2 vikna bið eftir heimilislækni

Íbúar í sumum hverfum í Reykjavík þurfa að bíða lengi eftir tímum hjá heimilislæknum á meðan íbúar annarra hverfa, sem og í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarinnar, geta fengið tíma fyrr.Fréttablaðið/Stefán
Íbúar í sumum hverfum í Reykjavík þurfa að bíða lengi eftir tímum hjá heimilislæknum á meðan íbúar annarra hverfa, sem og í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarinnar, geta fengið tíma fyrr.Fréttablaðið/Stefán
Allt að tveggja vikna bið er eftir tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu um þessar mundir, samkvæmt óformlegri könnun Fréttablaðsins. Íbúar í sumum hverfum komast strax að en aðrir geta þurft að bíða lengi.

Afar misjafnt er eftir heilsugæslustöðvum hversu lengi fólk þarf að bíða eftir því að fá tíma. Á nær helmingi heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu var ýmist enginn biðtími, eða sjúklingar gátu fengið tíma eftir einn virkan dag. Á öðrum stöðvum var biðtíminn níu eða tíu virkir dagar, eða um tvær vikur.

Í könnun Fréttablaðsins, sem gerð var síðastliðinn föstudag, var hringt í allar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu og kannað hvenær næst væri laus tími hjá einhverjum heimilislækni. Á fjórum heilsugæslustöðvum af sextán var biðtíminn lengri en ein vika, eins og sjá má í meðfylgjandi töflu. Meðal biðtíminn var ríflega þrír virkir dagar.

„Það er ófullnægjandi að biðtíminn skuli geta verið svona langur,“ segir Lúðvík Ólafsson, lækningaforstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hann segir að biðtíminn mælist yfirleitt minni í reglulegum könnunum sem heilsugæslan gerir á þjónustu. Lúðvík bendir á að yfirleitt geymi heilsugæslustöðvarnar einhverja læknatíma fyrir sjúklinga sem ekki geti beðið, og taka verði það með í reikninginn.

„Auðvitað vildi maður helst að biðtíminn væri sem stystur,“ segir Lúðvík. Hann segir það alltaf vandamál þegar biðtíminn sé langur að nýting tímanna sé verri, enda gleymi fólk að mæta, eða því batni og gleymi að afpanta tímann.

„Það er grundvallarvandi hjá okkur að það eru of fáir læknar til að sinna heimilislækningum á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Lúðvík. Sú staðreynd sé þekkt að hlutfallslega færri læknar séhæfi sig í heimilislækningum hér á landi en á nágrannalöndunum.

brjann@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×