Skref í átt að lausn á skuldavandanum 13. október 2010 06:00
Fundur um 30 þingmanna úr öllum flokkum í þjóðmenningarhúsinu í gærkvöldi markar spor í þá átt að stjórnmálaflokkarnir nái saman um að taka á skuldavanda heimila og fyrirtækja, segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. „Það hefur komið fram að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til eru ekki fullnægjandi, og það sem meiru skiptir er að þær hafa ekki verið nýttar af þeim sem eru í miklum greiðsluvanda," segir Jóhanna. Fundinn sátu þingmenn úr fjórum þingnefndum, auk fimm ráðherra. „Menn voru sammála um að skerpa þurfi á þeim úrræðum sem í boði eru þannig að þau verði virkari, bæði hjá lánastofnunum og umboðsmanni skuldara. Á fundinum komu fram margar athyglisverðar hugmyndir um hvernig hægt sé að vinna að þessum málum," segir Jóhanna. „Þarna var mikill samstarfsvilji og ég vona að hann skili sér í aðgerðum fyrir fólkið, það er það sem mestu skiptir," segir Jóhanna. Hún reiknar með að einhverjar aðgerðir verði samþykktar strax í þessari viku, til dæmis að stöðva innheimtuaðgerðir strax hjá þeim sem leiti til umboðsmanns skuldara. Hún segir undirbúning fyrir aðrar aðgerðir taka lengri tíma. Jóhanna segir þennan fund leggja línurnar fyrir fund sem verður með fulltrúum fjármálastofnana og hagsmunaaðilum heimilanna í dag. Sá fundur muni gefa skýrar vísbendingar um hvort þessir aðilar séu tilbúnir til að vinna að því með stjórnvöldum að finna lausnir. Meðal þess sem ræða á betur í dag eru hugmyndir um niðurfærslu á skuldum. Jóhanna segir skiptar skoðanir um málið í öllum flokkum og í þjóðfélaginu. Niðurfærsla á skuldum hafi áhrif á banka, Íbúðalánasjóð og lífeyrissjóðina. Samfélagslega sátt þurfi um málið, og erfitt að segja hversu langt sé í að niðurstaða náist. Jóhanna segir þennan fund að mörgu leyti einstakan. „Ég held það sé ekki hægt að finna marga fundi í sögunni þar sem helmingur þingmanna, úr stjórn og stjórnarandstöðu, hefur setið saman í einlægum og málefnalegum umræðum um hvernig hægt er að leysa vandann." brjann@frettabladid.is
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira