Innlent

Metþátttaka í Háskóla unga fólksins

1500 grunnskólabörn eru skráð í Háskóla unga fólksins.
1500 grunnskólabörn eru skráð í Háskóla unga fólksins.

Metþátttaka verður í Háskóla unga fólksins í ár en 1500 grunnskólabörn eru skráð í skólann að þessu sinni. Háskóli unga fólksins opnar upp á gátt á mánudaginn 7. júní og stendur í tvo daga, segir í tilkynningu.

Háskóli Ísland stendur fyrir skólanum ár hvert en í næstu viku býðst nemendum og kennurum 6. til 10. bekkjar grunnskóla eftirminnileg ferð á vettvang vísindanna. Vinsældir Háskóla unga fólksins undanfarin ár hafa sýnt svo um munar að ungir Íslendingar heillast af vísindum og fræðum, segir í tilkynningunni.

Tekið verður á móti skólahópum á Háskólasvæðinu eftir helgina með lifandi dagskrá um heima og geima vísinda þar sem óvæntir viðburðir og uppákomur bíða gesta. M.a. mun hið landsfræga Sprengjugengi Háskólans fara mikinn.

Dagskrá heimsóknarinnar tekur um 80 mínútur og verður víða komið við, bæði innan dyra og utan. Áhersla verður lögð á að kynna fjölbreytt starf allra fræðasviða Háskóla Íslands. Markmiðið er að opna veröld vísindanna fyrir ungu fólki og glæða áhuga þess á vísindum og fræðum.

Að þessu sinni verður m.a. boðið upp á innsýn í fjölmörg tungumál, táknmál, menningu og menningarmiðlun, fornleifafræði og handritin okkar. Þá verður horft til himins og sjónum beint að stjörnum, stjörnufræði, líffræði og litningum, brúarsmíði og segulhnjám. Auk þess verður leikið á landsfrægt eldorgel sem tónar vel við jarðvísindin og eldgosafræðin sem hafa verið í deiglunni undanfarið vegna eldsumbrota í Eyjafjallajökli.

Nemendur í Háskóla unga fólksins munu glíma við ýmsar þrautir og heilabrot auk þess að skoða náttúruna og umhverfið. Þá kíkja þeir á tennur og beinagrindur, skoða líkamann og huga að heilsu og næringu. Ekki má gleyma mannfræði og þjóðfræði þar sem jafnrétti ber á góma en allt endar með íþróttum og hreyfingu og nesti í boði Háskóla Íslands.

Háskóli unga fólksins hefur verið starfræktur hvert sumar í HÍ frá árinu 2004.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×