Enski boltinn

Chelsea komið í undanúrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lampard fagnar marki sínu í dag.
Lampard fagnar marki sínu í dag.

Chelsea varð í dag þriðja liðið til þess að tryggja sér farseðilinn í undanúrslit ensku bikarkeppninnar er liðið lagði Stoke, 2-0, á heimavelli sínum, Stamford Bridge.

Frank Lampard kom Chelsea yfir á 35. mínútu og John Terry bætti öðru marki við á 67. mínútu. Hann fagnaði markinu innilega enda hafa síðustu vikur verið honum erfiðar.

Chelsea, Portsmouth og Aston Villa því öll komin í undanúrslit. Síðasta liðið inn í undanúrslitin verður Tottenham eða Fulham en þau þurfa að eigast við að nýju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×