Innlent

Hrikalegt að horfast í augu við þetta

Ragna Árnadóttir
Ragna Árnadóttir

„Er það svo að Landhelgisgæslan geti ekki haldið úti lögbundnu hlutverki sínu nema með þeim peningum sem hún hefur haft og er lítið hægt að skerða þau framlög? Að þessu spyr ég mig þessa dagana. Allt sem gert er virðist ógna öryggi sjómanna og það er hrikalegt að þurfa að horfast í augu við það,“ segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra, um stöðu Landhelgisgæslunnar.

En mun hún beita sér fyrir því að LHG verði tryggt fjármagn til að halda úti tveimur þyrluvöktum? „Við komum alltaf að því að sama. Hvaðan eiga þessir peningar að koma? En ef það er engin önnur leið til að spara en að fækka þyrlum eða áhöfnum þeirra finnst mér komin upp sú staða að ríkisstjórnin þurfi að taka ákvörðun um hvað skuli gera. Við erum að tala um þjónustu sem er jafn mikilvæg og margt annað sem við teljum sjálfsagt – til dæmis sjúkrahús og heilsugæsla.“

Ragna segist skilja áhyggjur sjómanna og niðurskurður hjá LHG sé mjög viðkvæmt mál. „Blessunarlega tókst að koma sjómanninum heim óhultum í þessu tilviki. Ég verð að segja að það gengur ekki að fólk sé með lífið í lúkunum í orðsins fyllstu merkingu. Þetta atvik gefur fullt tilefni til að ráðuneytið og Gæslan fari yfir þetta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×