Þeir sem eru flinkir í prófkjöri óttast persónukjör Höskuldur Kári Schram skrifar 10. október 2010 18:33
Formaður allsherjarnefndar Alþingis segir að ekkert standi í vegi fyrir því að frumvarp um persónukjör verði lagt fram á Alþingi í vetur. Hann vísar því á bug að persónukjör dragi úr möguleikum kvenna til að komast á þing. Frumvarp um persónukjör til sveitarstjórna og Alþingis er ekki að finna á málalista stjórnarinnar fyrir haustþing en málið hefur verið flutt í tvígang. Fram kom í máli Ögmundar Jónassonar í fréttum Stöðvar tvö í gær að innan þingflokks Vinstri grænna hafi menn áhyggjur af því að persónukjör kunni að draga úr möguleikum kvenna til að komast á þing. Þessu vísar Róbert Marshall, formaður allsherjarnefndar Alþingis á bug. Róbert segir að þeir einu sem þurfi að hafa áhyggjur af persónukjöri séu óvinsælir stjórnmálamenn sem eru flinkir í prófkjöri. „Við höfum séð það í síðustu kosningum að það er mikill vilji til þess hjá kjósendum að breyta röð frambjóðenda á kjördag og það finnst mér að við eigum að koma til móts við," sagði Róbert. Róbert ætlar sjálfur að beita sér fyrir þessu frumvarpi í vetur. „Ef það á ekki að leggja það fram af hálfur ráðuneytis þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að það verði flutt sem þingmannamál," sagði Róbert að lokum.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira