Ók yfir tvo erlenda ferðamenn í tjaldi 5. júní 2010 06:30 Tveir kanadískir ferðamenn voru í fastasvefni í tjaldi sínu þegar bíl var ekið yfir tjaldið. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur. fréttablaðið/bergsteinn
Tveir erlendir ferðamenn voru fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir að bíll hafði ekið yfir tjald þeirra á Patreksfirði nóttina áður. Mennirnir eru ekki alvarlega slasaðir. Ökumaður bílsins var færður á lögreglustöðina á Ísafirði. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Það var klukkan fimm í fyrrinótt sem lögregla var kölluð á tjaldstæðið á Patreksfirði. Þegar lögreglumenn komu á vettvang kom í ljós að bíl hafði verið ekið yfir tjald á svæðinu. Tveir menn voru sofandi í tjaldinu. Reyndist vera um tvo kanadíska, rúmlega tvítuga, ferðamenn að ræða. Hjól bílsins fóru að einhverju leyti yfir þá. Þeir voru slasaðir og jafnframt slegnir eftir atvikið, en gátu þó rætt við lögregluna. Mennirnir voru fluttir á sjúkrahúsið á Patreksfirði, þar sem þeir voru í rannsakaðir og hlynnt að þeim í gærdag. Hvorki var talið að þeir væru lífshættulega slasaðir né beinbrotnir. Meiðslin voru talin minniháttar miðað við það sem þeir urðu fyrir. Þeir voru hins vegar mjög miður sín eftir þessa ónotalegu upplifun. Síðdegis í gær voru þeir svo fluttir á bráðamóttöku Landspítalans eins og áður sagði til myndatöku og frekari rannsókna. Þeir voru með áverka á höfði og brjóstkassa eftir að hafa fengið bílinn yfir sig, að sögn Jóns B. G. Jónssonar, læknis á heilbrigðisstofnuninni á Patreksfirði. Þrennt var í bílnum sem ekið var yfir tjaldið. Það fólk hafði ætlað sér að gista á svæðinu, en atburðarásin varð önnur. Ökumaðurinn, sem er rúmlega tvítugur, var handtekinn og færður á lögreglustöð. Hann var grunaður um ölvun og jafnvel að hafa verið undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Blóðsýni munu leiða það í ljós. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Fréttablaðið hefur fengið viðurkenndi hann brot sitt. Auk hans voru vitni færð til yfirheyrslu á lögreglustöð. Þurfti að láta sumt af fólkinu, þar á meðal ökumanninn, sofa úr sér fyrir yfirheyrslurnar í gærdag. Enginn sérstakur eftirlitsmaður er á tjaldstæðinu á Patreksfirði, samkvæmt upplýsingum sem fengust í áhaldahúsi bæjarins. Hins vegar fara bæjarstarfsmenn þangað reglulega til að þrífa svæðið. Lögreglan á Ísafirði fer með rannsókn málsins. jss@frettabladid.is
Mest lesið „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Hvar er Khamenei? Erlent Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Innlent Vill útbúa lista yfir íslenska hermenn í þágu varna Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira