Áfellisdómur að gengistryggð lán skyldu viðgangast Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. júlí 2010 09:49 Steingrímur segir gengistryggðu lánin vera erfðasynd frá ruglárunum. „
Þetta er dæmalaus uppákoma, þegar grundvöllur umfangsmikillar lánastarfsemi sem búin er að viðgangast í níu ár er að hluta til eða verulegu leyti dæmdur ólöglegur," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um dóm Hæstaréttar vegna gengistryggðra lána. Steingrímur sagði í samtali við Sólveigu Bergmann og Sigurjón M. Egilsson Í bítinu á Bylgjunni að lögin hafi verið skýr. Það hafi verið ætlun löggjafans að koma í veg fyrir svona lán. „Þetta er alveg makalaus uppákoma og áfellisdómur fyrir fjármálakerfið, eftirlitskerfið og fyrir alla að þetta skyldi viðgangast. Þetta er ein af dapurlegum erfðasyndum frá þessum ruglárum," segir Steingrímur. Hann segir að með dómnum hafi ákveðinni réttaróvissu verið eytt þó að enn standi eftir réttaróvissa um það hvernig fara eigi með lánin, hvaða vextir eigi að gilda. Þá sagðist Steingrímur vera ósammála þeirri skoðun að stjórnvöld hafi ekki verið í stakk búið til að bregðast við dómi Hæstaréttar. Loks sagði Steingrímur að það færi eftir því hversu víðtækt fordæmisgildi Hæstaréttardómurinn hefði, hvert áhrif þeirra kynni að verða á fjármálakerfið. „Þetta er stærsti einstaki útlánastapi fjármálafyrirtækjanna, upp á milli 8 og 900 milljarða króna og ef höfuðstóll þeirra er færður niður um 40-6ö% þá er það gríðarleg," sagði Steingrímur. Ef dómurinn ætti við um íbúðalán og lán til fyrirtækja líkt og bílalán gætu áhrifin orðið mjög mikil.
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira