Innlent

Heróín- og morfínfíklum fækkar

Þórarinn Tyrfingsson segir meðferð SÁÁ fyrir sprautufíkla hafa borið mikinn árangur
Þórarinn Tyrfingsson segir meðferð SÁÁ fyrir sprautufíkla hafa borið mikinn árangur

Heróín- og morfínfíkn var nær óþekkt á íslenskum meðferðarstofnunum fram til ársins 1998. En árið 1999 birtust allt í einu sjúklingar á Vogi sem voru að sprauta morfíni í æð. Þessum sjúklingum fjölgaði fram til ársins 2005 og úr varð mikill og alvarlegur vandi.

„Um 200 ungir einstaklingar voru að leysa upp morfínforðatöflur sem ætlaðar voru krabbameins- og verkjasjúklingum utan sjúkrahúsa," útskýrir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi á vef SÁÁ. „Þeir náðu morfíni úr töflunum og sprautuðu sig með því í æð og nokkrir dóu."

Flestir þeirra sem dóu voru fyrir illa veikir sprautufíklar sem höfðu notað amfetamín og kókaín til að sprauta sig lengi.



Viðhaldsmeðferð fyrir sprautufíkla


Tvennt stuðlaði aðallega að tilurð þessa vanda. Í fyrsta lagi óvarleg og mikil sala og ávísun morfínforðataflna til sjúklinga utan sjúkrahúsa. Í öðru lagi töldu fáeinir geðlæknar og heimilislæknar ranglega að það væri viðurkennd og góð læknisfræði að nota slíkar töflur til að hjálpa sprautufíklum sem voru háðir morfíni eða heróíni.

„Þegar þessi vandi varð mönnum ljós var aðhald frá Landlæknisembættinu aukið. Á sama tíma kom til ný meðferð SÁÁ svokölluð viðhaldsmeðferð fyrir sprautufíkla sem eru háðir heróíni eða morfíni. Hvort tveggja þetta hefur gjörbreytt ástandinu og árangurinn undanfarin fjögur ár er stórgóður og athyglisverður," segir Þórarinn.

Nú er það ritalínið

Nú virðist það sama uppi á teningnum hvað ritalínvandann varðar. Þar stöndum við nú frami fyrir miklum vanda að mati Þórarins.

„Í fyrsta lagi er það óvarleg og mikil sala og ávísun ritalíns. Í öðru lagi telja fáeinir geðlæknar og heimilislæknar að það sé viðurkennd og góð læknisfræði að nota slíkar töflur til að hjálpa örvandi vímuefnafíklum," segir Þórarinn og óskar eftir sömu viðbrögðum og við morfínfíkn.

„Það þarf að auka aðhald að læknum og auka og bæta meðferð fyrir amfetamínfíkla á Íslandi," segir hann.

Vefur SÁÁ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×