Bræðslan fékk Eyrarrósina 15. febrúar 2010 17:45 Tekið á móti Eyrarrósinni.
Áskell Heiðar og Magni Ásgeirssynir, forsvarsmenn Bræðslunnar tóku við viðurkenningunni úr hendi Dorrit Moussaieff, verndara Eyrarrósarinnar. Fjölmennt var við athöfnina en auk afhendingar viðurkenningarinnar fluttu Sigríður Thorlacius og Högni Egilsson tónlist við góðar viðtökur gesta. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Hrefna Haraldsdóttir stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík fluttu ávörp. Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra er haldin árlega í húsi gamallar síldarbræðslu Kaupfélags Héraðsbúa, sem breytt hefur verið í tónleikahús. Hátíðin hefur vaxið jafnt og þétt allt frá upphafi hennar árið 2004 og á síðasta ári voru gestir Bræðslunnar um tvö þúsund talsins. Aðalsmerki Bræðslunnar er hin einstaka stemning sem myndast í síldarbræðslunni á tónleikakvöldinu sjálfu. Með alúð við skipulagningu hátíðarinnar og metnaði stjórnenda hefur Bræðslunni tekist að efla menningarlíf, mannlíf og ferðaþjónustu svæðisins og virkjað sköpunargleði og samtakamátt íbúa Borgarfjarðar eystra. Þannig hefur þessu samstarfsverkefni nokkurra heimamanna tekist að skapa Borgarfirði eystra fastan sess í tónleikaflóru sumarsins og varanlegt sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Þrjú verkefni voru tilnefnd og kynnt sérstaklega á Bessastöðum í dag. Hin verkefnin tvö eru Eiríksstaðir í Haukadal og Skjaldborg, heimildarmyndahátíð á Patreksfirði. Handhafar Eyrarrósarinnar frá upphafi eru: Þjóðlagahátíðin á Siglufirði; LungA, Listahátíð ungs fólks á Austurlandi, Strandagaldur á Hólmavík, Rokkhátíð alþýðunnar; Aldrei fór ég suður og Landnámssetrið í Borgarnesi. Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands. Markmiðið með Eyrarrósinni er að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Auglýst var eftir umsóknum í fjölmiðlum og voru umsækjendur m.a. ýmis tímabundin verkefni, menningarhátíðir, stofnanir og söfn. Fjögurra manna verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðastofnunar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefna og velja verðlaunahafa. Viðurkenningin er fjárstyrkur að upphæð 1.5 milljón, verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur auk flugmiða frá Flugfélagi Íslands.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Sjá meira