Þingmaður telur starfsreglur hafa verið brotnar 25. október 2010 03:00
Bankasýsla ríkisins braut starfsreglur um skilvirka og gagnsæja ferla við sölu á eigum Landsbankans til Arion, félags í eigu lífeyrissjóða, að mati Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks. Guðlaugur krafði Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra um viðbrögð í fyrirspurnatíma á Alþingi fyrir helgi. „Nú segir hvergi að brjóta megi allar reglur ef lífeyrissjóðir eiga í hlut. Hvað ætlar fjármálaráðherra að gera?" spurði Guðlaugur og kvað Bankasýsluna kosta skattgreiðendur 100 milljónir króna á ári, þótt meginhlutverk hennar væri bara að fara með hlut ríkisins í Landsbankanum. Steingrímur benti á að Bankasýslan færi einnig með eign ríkisins í Arion og Íslandsbanka og væri að taka við eignarhlut í sparisjóðunum. Þá væri kostnaður við Bankasýsluna ekki 100 milljónir, heldur á milli 50 og 60. Þá sagði fjármálaráðherra fullyrðingu Guðlaugs um að farið hafi verið á svig við lög og reglur rakalausa. Útskýrt hefði verið bæði af hálfu Landsbankans og Bankasýslunnar hvernig að málum hefði verið staðið, um hafi verið að ræða sameiningu eignarhalds við stækkaðan sjóð, fremur en beina eignasölu. - óká
Mest lesið „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna Innlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Fleiri fréttir Skjálfti í Bárðarbungu metinn 4,1 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Sjá meira