Ekki tímabært að spyrja Álftnesinga 15. febrúar 2010 04:00 Fulltrúi minnihlutans í bæjarráði Álftaness og fyrrverandi bæjarstjóri segir ótímabært að kanna hug íbúa til sameingar á meðan fjárhagsvandinn sé óleystur og valkostir ekki skýrir. Fréttablaðið/Valli
Bæjarráð Álftanes ætlar að kanna hug íbúa sveitarfélagsins til sameiningar við önnur sveitarfélög samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um Icvesave. „Spurningar myndu miða að könnun á vilja Álftnesinga til annars vegar sameiningar við önnur sveitarfélög og hins vegar ef já, þá hvaða sveitarfélags/sveitarfélaga,“ sagði í tillögu meirihlutans. „Skoðanakönnun vegna hugsanlegrar sameiningar er ekki tímabær,“ bókaði Sigurður Magnússon, fulltrúi minnihluta Á-listans, sem greiddi atkvæði á móti. Sigurður benti á að verið væri að finna lausn á fjárhagsvanda sveitafélagsins og að enn væri óafgreitt erindi Álftaness um leiðréttingu frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. „Ef sameiningarmálin koma síðar til athugunar, svo sem vegna þess að ekki næst lausn á fjárhagsvandanum, væri rétt og tímabært að láta fara fram könnun um afstöðu íbúanna,“ sagði Sigurður og benti á Hafnarfjörð, Garðabæ og Reykjavík í þessu samhengi. Engir valkostir hafi verið kynntir fyrir íbúum Álftaness. „Að öðru jöfnu er þó líklegast að sameining við Reykjavík tryggði Álftnesingum besta nærþjónustu, þar sem fjarlægð til Reykjavíkur væru rök fyrir að byggja upp öfluga þjónustu á Álftanesi,“ sagði hann. Fulltrúar meirihlutans sögðu samning Álftaness við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga kveða á um að lausn á fjárhagsvanda Álftaness felist meðal annars í skoðun á sameiningarkostum. - gar
Mest lesið Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Innlent „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Innlent Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Innlent Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Innlent Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Innlent Telja dagana frá síðasta innbroti Innlent Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því Innlent Von á mesta vindinum í marga mánuði Veður Grindavíkurgersemin Birna Óladóttir fallin frá Innlent „Ég má ekki heita Hrísey en ég má heita Rodriguez“ Innlent Fleiri fréttir Ekki liðnir níu dagar þegar það var aftur brotist inn Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Dómsuppkvaðning í Gufunesmálinu og óveður í aðsigi Meirihluti íbúa ánægður með flutning stórtónleika á sunnudag Annar fulltrúa Framsóknar hættur í bæjarstjórn Kópavogs Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Ekki búin að ákveða hvort þjóðaröryggisráð verði kallað saman „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Grindavíkurgersemin Birna Óladóttir fallin frá Kristrún í pallborði með Starmer, Carney og Albanese Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Hugmyndir kynntar um „miðstöð jaðaríþrótta“ í Toppstöðinni Telja dagana frá síðasta innbroti Rannsaka líkamsárás og fjárkúgun Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því „Ég má ekki heita Hrísey en ég má heita Rodriguez“ Skvísur séu almennt frekar næringarsnauðar og börnin geti orðið matvönd „Þau eru að herja á börnin okkar“ Skipulagði bæjarferðir að vestan þannig að hann kæmist í Blóðbankann Lægð sem valdi meiri usla Minna fólk á að hafa vistir til þriggja daga á heimilinu Dæmigert hundaflaut að spyrja hvort kynin séu tvö Grafalvarleg staða í Danmörku, trampólínlægð og hundaflaut Viðvörunarstig hækkað: Auknar líkur á gosi Refsing fyrir að nauðga þroskaskertum manni milduð Breytingar í vændum á skrifstofu forseta Stærðarinnar grjót féll á fjölfarinn veg Bein útsending: Farið yfir það nýjasta í krabbameinsrannsóknum „Handagangur í öskjunni“ leiddi til þess að menntskælingar fengu áfengi Sjá meira