Forseti lagadeildar sammála Jóni Steinari Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. október 2010 11:30 Róbert Spanó segir mögulegt að koma millidómsstigi upp um mitt næsta ár. Mynd/ Stefán.
Forseti lagadeildar Háskóla Íslands tekur undir með Jóni Steinari Gunnlaugssyni hæstaréttardómara að tilefni sé til að stofna millidómsstig á Íslandi. „Til þess standa margvísleg rök. Fyrri röksemdin sem má nefna er að fjöldi þeirra mála sem Hæstiréttur er að dæma gerir það að verkum að dómstóllinn þarf almennt að vera skipaður þremur dómurum af níu í hverju máli. Það dregur úr almennu fordæmishlutverki Hæstaréttar við að kveða upp dóma sem skýra réttarstöðuna með almennum hætti," segir Róbert Spanó, forseti lagadeildar HÍ. Róbert segir að ef millidómsstig verði sett á laggirnar geti það haft þau áhrif að Hæstiréttur geti í ríkari mæli verið skipaður fimm eða sjö dómurum til að treysta í sessi almenn fordæmisáhrif úrlausna Hæstaréttar. „Í öðru lagi leiðir af skuldbindingum okkar samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu að það þarf í ríkari mæli að tryggja í sakamálum að endurskoðun héraðsdóma varðandi mat á sönnun sé raunveruleg," segir Róbert. Hann segir að áfrýjunarréttturinn verði að geta endurmetið sönnunarfærslu í málum. Þetta sé erfiðleikum bundið í núverandi kerfi og millidómsstig myndi hjálpa verulega til þess ef réttarfarsreglur fyrir þeim dómstól væru í lagi. „Þannig að ég tek heilshugar undir þau sjónarmið hæstaréttardómarans að millidómsstig sé eitthvað sem eigi að stefna að og gera það sem allra fyrst," segir Róbert. Róbert segir að það fari eftir því hvernig hugmyndin um millidómsstig yrði útfærð hversu langan tíma það tæki að koma slíku kerfi á fót. Ef farið yrði í að undirbúa slíkar tillögur á allra næstu vikum yrði raunhæft að koma slíku dómsstigi á um mitt næsta ár. „Það yrði auðveldara ef að í fyrstu atrennu yrði millidómsstig einungis í sakamálum en ég held hins vegar að almennt séð eigi að stefna að almennu millidómsstigi á Íslandi," segir Róbert.
Tengdar fréttir Vill millidómsstig og færri hæstaréttardómara Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari vill að þegar í stað verði hugmynd um millidómstig hrint í framkvæmd. Það dómstig þurfi bæði að fjalla um einkamál og sakamál. Kostnaðurinn við það sé mun minni en margir telji. 29. október 2010 09:36 Mest lesið „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Innlent Fleiri fréttir Fósturfaðirinn áfram í gæslu Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Sjá meira
Vill millidómsstig og færri hæstaréttardómara Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari vill að þegar í stað verði hugmynd um millidómstig hrint í framkvæmd. Það dómstig þurfi bæði að fjalla um einkamál og sakamál. Kostnaðurinn við það sé mun minni en margir telji. 29. október 2010 09:36