Hætt að senda flóttamenn til Grikklands 14. október 2010 13:25 Flóttamenn að mótmæla í Reykjanesbæ. Myndin er úr safni.
Dómsmála- og mannnéttindaráðherra hefur ákveðið að stöðva að svo stöddu endursendingar hælisleitenda til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar samkvæmt tilkynningu á heimasíðu ráðuneytisins. Þessi ákvörðun er tekin í ljósi nýrra tilmæla Mannréttindadómstóls Evrópu til Noregs og breytinga á afstöðu norskra stjórnvalda í kjölfar þeirra. Umsóknir um hæli, sem ella bæri að taka til efnismeðferðar í Grikklandi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, verða því afgreiddar hér á landi þar til annað verður ákveðið. Í samræmi við niðurstöður skýrslu um endursendingar hælisleitenda til Grikklands, sem ráðuneytið kynnti 11. júní 2009, hafa íslensk stjórnvöld fylgt þeirri reglu að hvert tilvik fyrir sig sé skoðað og aðstæður viðkomandi einstaklings metnar áður en ákvörðun er tekin um endursendingu til Grikklands. Sú niðurstaða byggði á framkvæmd annarra ríkja sem eiga aðild að Dyflinnarreglugerðinni, einkum framvæmdar norskra yfirvalda og á dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 2. desember 2008 í máli gegn Bretlandi. Mannréttindadómstóllinn hefur nú til meðferðar nýtt mál sem höfðað var gegn belgískum stjórnvöldum þar sem reynir á hvort endursendingar til Grikklands séu enn samrýmanlegar Mannréttindasáttmála Evrópu, en dómur í málinu liggur ekki fyrir. Með tilkynningu sinni til norskra stjórnvalda 7. október sl. lýsti dómstóllinn þeirri fyrirætlan sinni að fallast á allar beiðnir um stöðvun til bráðabirgða vegna sendinga hælisleitenda til Grikklands þar til dómur félli í málinu gegn Belgíu. Jafnframt var skorað á norsk stjórnvöld að stöðva sendingar til Grikklands að svo stöddu. Norsk stjórnvöld hafa nú orðið við þeirri umleitan og birtu 12. október sl. þá ákvörðun sína að sendingar hælisleitenda til Grikklands færu ekki fram að svo stöddu. Dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur, í samráði við Útlendingastofnun, ákveðið að fara að dæmi Norðmanna og stöðva sendingar hælisleitenda til Grikklands meðan beðið er nýs dóms Mannréttindadómstólsins.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira