Fagurgrænn og umdeildur og Jón Gnarr veit ekki hvað hann á að gera við hann Þorbjörn Þórðarson skrifar 3. október 2010 19:15
Hjólreiðamenn nýta sér ekki hjólreiðastíginn við Hverfisgötu því þeir telja öruggara að ferðast hinum megin við götuna. Íbúar við Hverfisgötu hafa lagt bílum sínum við stíginn og þá hafa þeir kvartað yfir stígnum og þeim bílastæðum sem tekin voru í burtu. Sú ákvörðun umhverfis- og samgönguráðs að leggja þennan fagurgræna hjólreiðastíg við Hverfisgötuna grundvallaðist af góðum ásetningi. Að efla mannlíf í miðborginni og hvetja til aukinna hjólreiða. Um er að ræða tilraunaverkefni, en svo virðist sem það hafi ekki heppnast alveg nægilega vel, því mikil óánægja er með stíginn auk þess sem hjólreiðamenn virðast ekki nota hann í miklum mæli. Auk þess virðast bifreiðaeigendur láta eins og hann sé hreinlega ekki til staðar og leggja bílum sínum á stíginn. Hjólreiðamenn sem fréttastofa ræddi við sögðu að meira öryggi væri fólgið í því að hjóla hinum megin við götuna, við gangstéttina, því hjólreiðastígurinn tæki enda sem þýddi að menn færu í miðri umferð við lok stígsins. Það virtist þó ekki trufla þessa stúlku. Til lítils ef enginn vill hjóla á stígunumEins og sést hér virða bifreiðaeigendur hjólreiðastíginn að vettugi og leggja bílum sínum yfir stíginn.En stendur til að færa stíginn? „Við settum þetta upp í sumar í tilraunaskyni og það hafa verið nokkur vandkvæði. Bæði hefur fólk lagt bílunum sínum á hjólreiðastíginn og síðan hafa íbúar kvartað yfir því að það sé búið að taka stæði. Ein hugmynd, sem ég veit ekki hvort að komi til framkvæmda, er að flytja hjólreiðastíginn hinum megin við götuna. Svo þarf að fylgjast með því hversu margir nota þetta. Það væri hægt að hafa hjólreiðastíga hér um alla borg, en það væri til lítils ef enginn vildi hjóla á þeim. Þannig að, ég veit ekki alveg hver framtíð hjólreiða á Hverfisgötu verður," segir Jón Gnarr, borgarstjóri.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira