Lúðvík Geirsson telur sig njóta stuðnings hjá bæjarbúum 9. júní 2010 05:30 Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segist ekki líta svo á að verkum hans sem bæjarstjóri hafi verið hafnað í sveitarstjórnarkosningunum. „Samfylkingin fékk ekki umboð til að halda sínum meirihluta en ég get ekki litið svo á að það hafi komið fram höfnun á þeim verkum og því hlutverki sem ég hef gegnt hér sem bæjarstjóri," sagði Lúðvík spurður um það hvort hann teldi sér hafa verið hafnað í kosningunum. Lúðvík var í sjötta sæti á lista Samfylkingarinnar, hinu svokallaða baráttusæti, og komst ekki inn í bæjarstjórn. Eins og kunnugt er tapaði Samfylkingin hreinum meirihluta sínum og fékk fimm menn kjörna. Í frétt sem vefmiðilinn.Pressan birti þann 29. apríl síðastliðinn er haft eftir Lúðvíki: „Það er ljóst að kosningarnar í Hafnarfirði munu snúast um hvort bæjarstjórinn verði kjörinn eða ekki. Þær snúast um mig. Ég fór í baráttusætið til að verja stöðu Samfylkingarinnar." Spurður út í þessi ummæli vísaði Lúðvík til þess stuðnings sem hann mældist með samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var meðal Hafnfirðinga í aðdraganda kosninganna. Í skoðanakönnuninni sögðust 67 prósent svarenda vilja Lúðvík áfram sem bæjarstjóra. Lúðvík sagðist vera fyllilega bjartsýnn á komandi kjörtímabil og samstarfið við Vinstri græna og bætti því við að engin sérstök átakamál hefðu komið upp í viðræðum flokkanna.
Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Bíll valt í Kópavogi Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Fleiri fréttir Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Sjá meira