Reyndi að hjálpa en var stunginn þrisvar 4. janúar 2010 06:30 Ágúst Fylkisson Var stunginn þrisvar með skrúfjárni þegar hann reyndi að koma tveimur ungum stúlkum til hjálpar á nýársnótt. Fréttablaðið/Daníel
Ágúst Fylkisson bílstjóri var stunginn þrisvar sinnum með ydduðu skrúfjárni þegar hann reyndi að koma tveimur stúlkum til aðstoðar á nýársnótt. „Ég var edrú og á leiðinni heim til mín í Blöndubakka úr Vesturbergi í Efra-Breiðholti. Við vorum á heimleið fjölskyldan en við vorum of mörg í bílinn svo ég ákvað að labba og koma við hjá mági mínum í Eyjabakka og óska honum gleðilegs nýs árs. Þegar ég kem fyrir endann á blokkinni sé ég mann standa þar með tveimur stelpum. Allt í einu hrindir hann annarri þeirra í götuna. Hún liggur þar hágrátandi þegar ég kem að og hin stelpan er hágrátandi líka.“ Ágúst segist hafa reynt að halda manninum frá stúlkunum, sem hlupu inn í anddyri blokkarinnar. Hann hafi spurt aðra þeirra hvað gengi á og hafi hún þá sagt honum að maðurinn væri fyrrverandi sambýlismaður móður hinnar stúlkunnar. Eftir að móðirin hafi slitið samvistum við hann hafi hann endurtekið komið aftur. Í þetta sinn hafi hann sagst ætla að drepa dóttur konunnar. Þá fór Ágúst aftur að manninum og reyndi að leiða hann í burtu frá blokkinni. „Þá finn ég að hann er að slá í síðuna á mér og sé að hann er með skrúfjárn sem búið er að ydda. Ég hafði engan kost annan en að spóla í hann og náði honum undir mig. En ekki fyrr en hann var búinn að stinga mig þrisvar, í bakið, upphandlegginn hægra megin og veita mér rispu á kviðinn. Hann endurtók allan tímann „I‘m kill you, I‘m kill you“.“ Verstan segir hann áverkann á bakinu en þar hafi skrúfjárnið stungist tvo sentimetra inn í hann og verið fáeinum millimetrum frá því að stingast inn í lunga. Alla nóttina hafi hann verið í rannsóknum og hann mætti teljast heppinn að ekki hafi farið verr. Á meðan á átökunum stóð hringdu bæði stúlkurnar og mágur Ágústs á lögregluna sem var fljótt komin á staðinn og hafði árásarmanninn á brott með sér. Honum var sleppt daginn eftir en ekki fást frekari upplýsingar hjá lögreglunni um framgang málsins. Í dag ætlar Ágúst að leggja fram kæru á hendur manninum. Ágúst komst í fréttirnar í apríl í fyrra þegar hann réðst á lögregluþjón í mótmælum bílstjóra á Kirkjusandi. Hann iðraðist atviksins og sendi frá sér afsökunarbeiðni. Fyrir árásina hlaut hann dóm og sat inni í þrjár vikur í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. holmfridur@frettabladid.is
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira