Þungir dómar í kókaínmálinu 23. júlí 2010 11:06 Davíð Garðarsson við aðalmeðferð málsins.
Davíð Garðarsson og Guðlaugur Agnar Guðmundsson fá báðir 4 ára og sex mánaða fangelsisdóm fyrir þátt sinn í kókaínmálinu svokallaða. Sakborningarnir voru allir viðstaddir þegar dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur nú fyrir skömmu. Mennirnir fimm sem ákærðir voru í málinu, þeir Davíð Garðarsson, Guðlaugur Agnar Guðmundsson, Jóhannes Mýrdal, Pétur Jökull Jónasson og Orri Freyr Gíslason voru sakaðir um að hafa staðið saman að innflutningi á 1,6 kílói af kókaíni frá Spáni. Efnin voru falin í þremur töskum sem Jóhannes flutti til landsins með farþegaflugi. Pétur Jökull fékk 3 ára fangelsisdóm og Orri Freyr fékk 3 ára og sex mánaða dóm. Jóhannes Mýrdal fékk 2 ára dóm fyrir sinn þátt í málinu. Davíð Garðsson lýsti því yfir að hann hyggðist áfrýja dómnum en hinir sakborningar tóku sér frest til að taka ákvörðun um áfrýjun. Við aðalmeðferð málsins játaði Jóhannes Mýrdal sök. Orra Frey og Guðlaugi Agnari var gefið að sök að hafa lagt á ráðin og fjármagnað innflutninginn. Orri Freyr hafi haft samband við Davíð Garðarsson sem fékk Pétur Jökul til að finna burðardýr. Davíð á einnig að hafa tekið við um þrem milljónum króna í evrum sem hann lét síðar Pétur Jökul fá til að afhenda Jóhannesi. Peningarnir áttu að borga fíkniefnin. Athygli vakti við aðalmeðferð málsins að þeir Pétur Jökull og Orri Freyr breyttu framburði sínum frá lögregluskýrslum og lögðu áherslu á það að Davíð Garðarsson hefði engan þátt átt í málinu. Spurði saksóknari Davíð hvort hann hefði beitt sakborningana þrýstingi og kom fram í máli hans að hann hefði átt samtöl við sakborningana eftir að einangrun lauk.
Tengdar fréttir Kókaínmálið: Halda hlífiskildi yfir meintum höfuðpaur Sakborningarnir í kókaínmálinu sem nú er til aðalmeðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur halda allir hlífiskildi yfir Davíð Garðarsyni, sem sakaður er um að hafa skipulagt innflutninginn. Tveir sakborninganna breyttu framburði sínum verulega frá því í skýrslutökum lögreglu og fyrir dómi í dag. 15. júlí 2010 11:15 Játaði aðild að umfangsmiklum kókaíninnflutningi Jóhannes Mýrdal, einn sakborninganna í svokölluðu Spánarmáli, játaði sök við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Jóhannesi var gefið að sök að hafa tekið að sér að flytja kókaín til landsins en hann var stöðvaður í Leifsstöð. 15. júlí 2010 11:03 Kókaínmálið: Lagði 3 milljónir inn á reikning Íslendings á Spáni Einn af sakborningunum í kókaínmálinu staðfesti fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að hann hefði haft samband við Sverri Þór Gunnarsson á Spáni. Sverrir var á upphafsstigum málsins talinn hafa staðið að kaupum efnisins á Spáni og er eftirlýstur af Europol. 15. júlí 2010 11:50 Mest lesið Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Innlent Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Innlent Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Innlent Fleiri fréttir „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Quang Le fer ekki langt Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Íslendingar berjast um eitt af efstu átta sætunum á EM Sjá meira
Kókaínmálið: Halda hlífiskildi yfir meintum höfuðpaur Sakborningarnir í kókaínmálinu sem nú er til aðalmeðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur halda allir hlífiskildi yfir Davíð Garðarsyni, sem sakaður er um að hafa skipulagt innflutninginn. Tveir sakborninganna breyttu framburði sínum verulega frá því í skýrslutökum lögreglu og fyrir dómi í dag. 15. júlí 2010 11:15
Játaði aðild að umfangsmiklum kókaíninnflutningi Jóhannes Mýrdal, einn sakborninganna í svokölluðu Spánarmáli, játaði sök við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Jóhannesi var gefið að sök að hafa tekið að sér að flytja kókaín til landsins en hann var stöðvaður í Leifsstöð. 15. júlí 2010 11:03
Kókaínmálið: Lagði 3 milljónir inn á reikning Íslendings á Spáni Einn af sakborningunum í kókaínmálinu staðfesti fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að hann hefði haft samband við Sverri Þór Gunnarsson á Spáni. Sverrir var á upphafsstigum málsins talinn hafa staðið að kaupum efnisins á Spáni og er eftirlýstur af Europol. 15. júlí 2010 11:50