Pétur Blöndal: Skuldarar horfa í naflann á sér 29. júní 2010 13:12
Það var líf í tuskunum á borgarafundi í Iðnó í gær. Talsmaður samtaka lánþega sagði þar mikilvægt að almenningur léti ekki vaða yfir sig á skítugum skónum. Þingmaður sagði skuldara hins vegar horfa í naflann á sér og þeir hefðu misst sjónar á heildarmyndinni. Opnir Borgarafundir stóðu fyrir vel sóttum borgarafundi í Iðnó í gærkvöld um nýfallna hæstaréttardóma um gengistryggð bílalán. Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, tók fyrstur til máls og ræddi enn um þá vexti sem lánin skulu bera eftir dómanna. Þá ræddi Gylfi um höggið sem lent gæti á skattgreiðendum ef leggja þarf bönkunum til nýtt eigið fé vegna þeirra. Guðmundur Andri Skúlason, frá samtökum lánþega, gagnrýndi að ef til þess kæmi hafi lánin hugsanlega verið færð yfir frá föllnu bönkunum yfir í þá nýju á of háu verði. Hann segir tapið vegna þessa eiga að falla á kröfuhafa bankanna en ekki almenning. „Mér finnst mikilvægt að við sem almenningur í þessu landi stöndum saman öll sem eitt og látum ekki vaða yfir okkur á skítugum skónum enn eina ferðina," sagði Guðmundur Andri. Þingmaðurinn Pétur Blöndal tók næstur til máls og sagði mikilvægt að öll óvissuatriði sem eftir væru um gengistryggð lán yrði að leiða til lykta fyrir dómstólum ekki síðar en innan mánaðar. Hann sagði margar hliðar á málinu. „Ein eru skuldararnir sem mér sýnist að hérna séu í miklum meirihluta, og virðast horfa bara á naflann á sér," sagði Pétur. „Ég ætla bara að segja það hreint út." „Kjaftæði," hrópuðu þá nokkrir fundargestir að Pétri sem svaraði um hæl: „Hafið þið hugleitt hvernig sparifjáreigendur hugsa? Hvað fólkið er að segja við mig í síma? Nei - það er drulluhrætt." Lilja Mósesdóttir þingmaður tók síðust til máls og gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að grípa til sértækra aðgerða í þágu skuldara, í stað almennra. Þá mæltist hún til þess að þak yrði sett á verðtryggingu. Að framsögum loknum var tekið við fyrirspurnum og spunnust við það nokkrar umræður.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira