21 stofnun með uppsafnaðan halla 29. júní 2010 16:12 Eins og mörg undanfarin ár varð verulegur halli á rekstri Landspítalans á árinu 2009, eða 1,3 ma.kr. Uppsafnaður halli spítalans í árslok nam rúmlega 2,8 ma.kr. eða um 8% af fjárveitingum. Rekstraráætlun spítalans fyrir árið 2010 gerir ráð fyrir að reksturinn verði í takt við fjárveitingar samkvæmt fjárlögum og að uppsafnaður halli haldist því óbreyttur í árslok. Samkvæmt tölum um rekstur fyrstu fjögurra mánaða ársins 2010 virðist áætlunin ætla að ganga eftir. Verði það raunin yrðu það að mati Ríkisendurskoðunar einhver jákvæðustu tíðindi sem orðið hafa í rekstri A‐hluta stofnana um langt árabil.
Færri stofnanir voru með verulegan uppsafnaðan halla í árslok 2009 en á sama tíma undanfarin ár. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga. Í árslok 2009 var 21 stofnun með uppsafnaðan halla umfram 4% af fjárheimild ársins en undanfarin ár hefur fjöldinn verið á bilinu 50-70. Af þessum stofnunum voru 16 reknar umfram heimildir á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010. Langflestar þeirra heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneytið, eða 12 og sex undir heilbrigðisráðuneytið. Margar hafa átt við verulegan fjárhagsvanda að stríða um langt árabil. Ríkisendurskoðun telur áríðandi að tekið verði á rekstrarvanda stofnana í eitt skipti fyrir öll. Dæmi eru um að stofnanir skili ekki rekstraráætlunum til ráðuneytanna á tilsettum tíma. Ríkisendurskoðun telur að í slíkum tilvikum eigi viðkomandi ráðuneyti að láta gera áætlun og leggja fyrir forstöðumann að fylgja henni. Stofnanirnar sem umræðir eru: Þjóðgarðurinn á Þingvöllum, Tilraunastöð Háskólans að Keldum, Raunvísindastofnun Háskólans, Landbúnaðarháskóli Íslands, Háskólinn á Hólum, Námsmatsstofnun, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Flensborgarskóli, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Þjóðskjalasafnið, Listasafn Íslands, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Útlendingastofnun, Landspítalinn, Rjóður - hvíldarheimili fyrir börn, Lyfjastofnun, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Heilsugæslustöðin í Borgarnesi og Heilsugæslustöðin í Ólafsvík.Náðu góðum tökum á fjármálunum Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga janúar til ágúst 2009, sem birt var í október á síðasta ári var gerð grein fyrir vanda þeirra 16 stofnana sem þá var talið ljóst að yrðu með verulegum halla í árslok 2009. Hins vegar tókst fjórum þeirra að ná endum saman, það er: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Menntaskólanum á Ísafirði, Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni og Blindrabókasafni Íslands. Bæði virðist stjórnendum hafa tekist á að ná góðum tökum á fjármálunum á síðari helmingi ársins og eins var brugðist við vanda stofnananna með auknum fjárveitingum. Þrjár þeirra, þ.e. aðrar en Menntaskólinn á Ísafirði, voru reknar umfram áætlanir á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010 og því ríkir óvissa um afkomu þeirra á árinu.
Tengdar fréttir Rekstur ríkisins innan fjárheimilda 29. júní 2010 15:27 Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira