Kennslu í ritmáli ábótavant 24. júní 2010 06:00 Í framhaldsskólum skortir á kennslu í rituðu máli að mati nemenda. Þeir telja sig vanbúna þegar kemur í háskóla. Mikill munur á undirbúningi fyrir háskólanám eftir skólum. Nemendur MA og MR ánægðastir.
Tæpur þriðjungur nemenda í Háskóla Íslands (HÍ) telur sig vanbúinn að skrifa ritgerðir eða skýrslur þegar í HÍ er komið. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem unnin var í HÍ. Mikill meirihluti, eða 71 prósent, telur að efla þurfi þjálfun í gagnrýnni hugsun og rökræðu í framhaldsskólunum. Róbert Haraldsson, formaður kennslumálanefndar HÍ og einn höfunda skýrslunnar, segir það kannski skýrast af tíðarandanum, hrunið og skortur á gagnrýninni hugsun í tengslum við það liti skoðanir nemendanna. Könnunin sýnir að mikill munur er á afstöðu nemenda til þess undirbúnings sem framhaldsskólinn veitti þeim fyrir háskólanám, eftir því í hvaða skóla þeir stunduðu nám. Nemendur Menntaskólans á Akureyri (MA) eru ánægðastir með skólann sinn; 98 prósent þeirra töldu undirbúninginn góðan. Um 93 prósent nemenda Menntaskólans í Reykjavík (MR) eru sama sinnis og ríflega 86 prósent nemenda Menntaskólans í Hamrahlíð. Minnst er ánægjan í Fjölbrautaskólunum í Vestmannaeyjum, Garðabæ og á Suðurnesjum; frá 29 prósentum suður með sjó, í 38 prósent í Eyjum. Rétt er að taka fram að mismargir eru að baki þessum tölum og úrtakið stundum lítið; aðeins 21 nemandi úr Vestmannaeyjum svaraði, svo dæmi sé tekið. Róbert segir skýrsluna einnig sýna að lítil skörun sé á milli skólastiganna, ekki sé verið að kenna sömu hlutina á framhalds- og háskólastigi. Þó ber að geta þess að nemendur MR, MA og Menntaskólans á Laugarvatni skera sig úr, 30 til 36 prósent þeirra telja of mikið endurtekið á fyrsta ári í HÍ. Róbert segir að á heildina litið komi framhaldsskólarnir nokkuð vel út úr viðhorfskönnuninni. Hann segir að í haust verði gerð námsgengiskönnun, þar sem árangur nemenda HÍ og brottfall eftir skólum verður kannað. Slík könnun sýni betur en viðhorfskönnun hver sé staða framhaldsskólanna.- kóp / sjá síðu
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira