Hanna Birna hafnar ásökunum um töffaragang 27. ágúst 2010 12:59 Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Mynd/Daníel Rúnarsson
Borgarstjóri Reykjavíkur segist efast um að geta átt samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn og sakar hann um töffaragang. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir engan töffaragang í flokknum, og menn megi ekki taka ágreiningi persónulega. Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, heldur úti dagbók á Fésbókinni þar sem hann deilir hugleiðingum um dagleg störf sín með borgarbúum og öðrum, en alls fylgjast á 16 þúsund manns með skrifum hans. Í gær skrifaði borgarstjórinn að honum þætti hann naive, hann réði ekki við þetta og næði ekki að vinna fallega. Hann efaðist um að geta átt samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn, hann sýndi auðmýkt en fengi lítið á móti nema töffaragang, hroka eða fálæti. Hann spyr hvort hann eigi að hætta að brosa, eða reyna áfram að vingast við fólk sem ekki ber virðingu fyrir honum og því sem hann og aðrir eru að reyna að gera í borginni. Alls höfðu rúmlega 240 manns sent Jóni skilaboð vegna ummælanna í morgun. Nokkrir til að senda honum pillu, en fleiri þó til að hvetja borgarstjórann til að brosa áfram. Jón Gnarr, borgarstjóri.Mynd/ArnþórFull persónuleg umræða Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir engan töffaragang eða hroka í flokknum og borgarfulltrúar hans beri virðingu fyrir öllum kjörnum fulltrúum. Hins vegar séu flokkarnir ólíkir og þeir verði að geta rætt ágreiningsmál og gæta þess að taka þeim ekki persónulega. „Mér finnst þessi umræða nú full persónuleg. Það er okkar hlutverk í stjórnmálum að skiptast á skoðunum og tryggja að við séum að standa vörð um hag borgarbúa. Það gerum við með því að ræða málin og þó það kom upp ólíkar skoðanir í þeim efnum þá held ég að menn verði að gæta þess að taka þeim ekki of persónulega," segir Hanna Birna.„Það er hins vegar ekkert launungarmál að við sjálfstæðismenn höfum að undanförnu gagnrýnt núverandi meirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar fyrir að nýta sumarið illa til að finna leiðir til hagræðingar í borgarkerfinu. Við höfum alfarið hafnað leið skatta- og gjaldskrárhækkana eins og virðist því miður stefna í. Það má vel vera að borgarstjóri upplifi þessa hörðu afstöðu okkar sem einhverskonar töffaragang eins og hann orðar það, en það er það auðvitað ekki."Jón tók við sem borgarstjóri af Hönnu Birnu í júní sl.Mynd/GVA„Vinnum saman" Sjálfstæðisflokkurinn fór inn í síðustu kosningabaráttu með ný vinnubrögð og einkunnarorðin „vinnum saman" að leiðarljósi. Hanna segir ekkert hafa breyst í þeim efnum. „Við höfum unnið með meirihlutanum eins og við höfum getað, og við höfum gert það af mikilli einlægni og heiðarleika eins og borgarstjóri sagði sjálfur í síðustu viku, svo skoðanirnar breytast nú ört. Það hefur dálítið skort á það af hálfu meirihlutans að vera í því samstarfi. Það hefur ekki mikið gerst á vettvangi borgarstjórnar þetta sumarið og við höfum kvartað undan því, en það er gott ef menn vilja spýta í lófana hvað það varðar," segir Hanna Birna.
Tengdar fréttir Jón Gnarr: Sjálfstæðismenn sýna mér hroka Jón Gnarr, borgarstjóri, segist efast um að hann geti unnið með Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðismenn sýni honum hroka og fálæti. Hann segist fá lítið til baka frá þeim nema töffaragang. Jón spyr lesendur dagbókar sinnar á samskiptavefnum Facebook hvort hann eigi að hætta að brosa til þeirra sem beri ekki virðingu fyrir honum. 27. ágúst 2010 08:28 Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Fleiri fréttir „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Sjá meira
Jón Gnarr: Sjálfstæðismenn sýna mér hroka Jón Gnarr, borgarstjóri, segist efast um að hann geti unnið með Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðismenn sýni honum hroka og fálæti. Hann segist fá lítið til baka frá þeim nema töffaragang. Jón spyr lesendur dagbókar sinnar á samskiptavefnum Facebook hvort hann eigi að hætta að brosa til þeirra sem beri ekki virðingu fyrir honum. 27. ágúst 2010 08:28