Músum fjölgar í Reykjavík Boði Logason skrifar 21. október 2010 13:45 Guðmundur Björnsson rekstrarstjóri meindýravarna Reykjavíkurborgar. Mynd/Teitur „
Maður sér það og heyrir það á kvörtunum frá íbúum að þær eru að koma meira inn greyin," segir Guðmundur Björnsson rekstrarstjóri meindýravarna Reykjavíkurborgar. Á haustin fara mýsnar að láta sjá sig og segir Guðmundur að aukning sé á músagangi í Reykjavík í októbermánuði miðað við undanfarin ár. Hann segir að stofninn sé orðinn stór en aðallega eru það húsamýs sem meindýravarnir hafa þurft að hafa afskipti af. „Þetta er eitthvað sem kemur alltaf upp á haustin, það er svo sem ekki óvenjulegt. En ætli ég myndi ekki segja að það sé einhver aukning í því," segir Guðmundur sem hefur þó ekki tekið saman neinar tölur sem sýna það svart á hvítu. „Það er alltaf gert um áramótin. En svo þegar að heildartala ársins er tekin saman þá er að sjá hvort að það jafnast út. En í þessum mánuði virðist þetta vera meira en síðustu ár." Aðspurður hver ástæða þess sé segir Guðmundur að stofninn sé orðinn stór. „Þetta var gott sumar og það virðist stefna í góðan vetur líka, þannig það er líklega skýringin." Hann segir að aðallega séu það húsamýs sem meindýravarnir Reykjavíkurborgar hafi verið að sinna undanfarið. En hvað geta íbúar gert til að koma í veg fyrir að mýsnar laumist inn í hús þeirra? „Leiðirnar eru í gegnum opnar hurðir yfirleitt og einnig bílskúrshurðir. Þar komast þær inn og svo oft er hurð frá bílskúrnum inn í íbúðina. Þetta eru því óþéttar hurðir og göt sem þær fara inn um. Það þarf að passa að hafa allar hurðir þéttar," segir Guðmundur að lokum.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Fleiri fréttir Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Sjá meira