Gerðu hróp að bæjarfulltrúum og mótmæltu ráðningu Lúðvíks 14. júní 2010 14:19 Mynd/Sigurjón
Hátt í eitt hundrað mótmælendur komu saman þegar fyrsti bæjarstjórnarfundur nýrrar bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fór fram í dag. Fólkið mótmælti ráðningu Lúðvíks Geirssonar sem bæjarstjóra en hann féll úr bæjarstjórn í kosningunum í lok síðasta mánaðar. Mótmælendur gerðu hróp að bæjarfulltrúum og gáfu bæjarstjórninni rauða spjaldið. Meirihluti Samfylkingarinnar féll í kosningunum í lok maí og náði Lúðvík sem gegnt hefur embætti bæjarstjóra síðastliðinn átta ár ekki kjöri. Eftir kosningarnar hófu Samfylkingin og Vinstri grænir viðræður um myndun meirihluta. Samkomulag flokkanna felur í sér að Lúðvík verður bæjarstjóri til ársins 2012. Frá þessu var gengið formlega á bæjarstjórnarfundinum sem hófst klukkan tvö í Hafnarborg. Það varð til þess að mótmælendur púuðu og sýndu bæjarstjórninni rauða spjaldið. Nokkrir þeirra hrópuðu auk þess „Við mótmælum" og „Þetta er ekki lýðræði." Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram bókun og sögðust ekki geta samþykkt ráðningu Lúðvíks í ljósi þess að hann náði ekki kjöri í bæjarstjórn.
Mest lesið Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Innlent Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Sjá meira