Hrottinn í Laugardal ófundinn 21. október 2010 12:07
Maður sem um hábjartan dag réðst á sextán ára gamla stúlku að tilefnislausu í Laugardalnum er ófundinn og er málið óupplýst. Stúlkan er á batavegi. Stúlkan var að ganga heim úr skólanum, Fjölbrautaskólanum í Ármúla, og stytti sér leið í gegnum Laugardalinn þegar maðurinn réðst á hana upp úr þurru síðdegis hinn 11. október síðastliðinn. Stúlkan, sem var með alvarlega áverka, komst við illan leik upp á Suðurlandsbraut þar sem vegfarandi kom henni til aðstoðar og hringdi á sjúkrabíl. Í kjölfarið leituðu lögreglubílar og lögreglumenn á mótorhjólum að manninum í Laugardalnum og víðar, án árangurs. Stúlkan var með alvarlega áverka, en er í dag á batavegi. Í fyrstu var talið að árasarmaðurinn hefði notað grjóthnullung við verknaðinn, en nú telur lögregla að einhvers konar barefli hafi verið notað, lurkur eða stöng úr hörðum málmi, að sögn Björgvins Björgvinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan lýsti eftir manninum á grundvelli þeirra upplýsinga sem stúlkan veitti en þær ábendingar sem bárust gátu ekki hjálpað við að upplýsa málið. Maðurinn er 170 sentimetrar á hæð, skolhærður og meðalmaður að vexti. Hann var klæddur í dökkan jakka eða peysu og í hvítum skóm með rauðum röndum þegar hann réðst á stúlkuna. Vegna þeirrar hættulegu aðferðar sem maðurinn beitti við árásina og þeirra áverka sem hann veitti stúlkunni er litið svo á að um alvarlega líkamsárás sé að ræða í skilningi 218. gr. almennra hegningarlaga. Óvíst er hins vegar hvort maðurinn finnist nokkurn tímann. Ekki er vitað hvað vakti fyrir árásarmanninum, en hann hafði ekki kynferðislega tilburði í frammi gagnvart stúlkunni og gerði ekki tilraun til að hafa af henni verðmæti.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira