Hestamennska og trúarhefðir verði að mæta afgangi 21. október 2010 12:01
Áhugamál eins og hestamennska og trúarhefðir verða að mæta afgangi í fjárlögum á meðan fólk stendur í biðröðum eftir mat. Þetta kom fram í máli Þórs Saari, þingmanns Hreyfingarinnar, á Alþingi í morgun. Hann kallaði eftir breyttri forgangsröðun í fjárlagafrumvarpinu. Þór Saari, þingmaður Hreyfingar, vakti athygli á því í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun að í síðustu viku hafi 550 manns sótt sér mat til fjölskylduhjálpar Íslands. „Fólkið stendur utandyra í biðröðum oft tímunum saman nema í gær þá lánaði rútufyrirtæki bifreið til að fólk gæti haldið á sér hita í nepjunni. Þar voru fréttamenn frá franskri sjónvarpsstöð á vettvangi og þeir voru hissa á ástandinu og sögðu aðstæður í rauninni einsdæmi í allri Evrópu," sagði Þór. Þór spurði Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra hvort hann hygðist beita sér fyrr því að fátækt fólk á íslandi verði aðstoðað með öðrum hætti en nú er gert, „til dæmis með útgáfu matarkort sem hægt væri að nota í verslunum, í öðru lagi útvegun á viðunandi húsnæði ef hitt stendur ekki til þannig að matargjafir þurfi ekki að fara fram utandyra... það er eins og það sé verið að koma fram við fólk eins og skepnur." Þór benti á að í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi sé gert ráð fyrir því að veita tæpum fimm milljörðum til þjóðkirkjunnar og milljónum til hestamannafélaga vegna kvefpestar í hrossum. Kallaði hann eftir breyttri forgangsröðun. „Því svona ástand þarf fyrst og fremst að mæta grunnþörfum fólks," sagði Þór. „Áhugamál eins t.d. hestamennska eða trúarhefðir, þó menningartengd séu, verða að mæta afgangi." Dapurlegt ástand Fram kom í máli Steingríms að ástandið væri dapurlegt en það væri hægara sagt en gert að útrýma fátækt á Íslandi. „En ég held að við þurfum að taka þetta ástand mjög alvarlega. þetta er ekki ástand þar sem einhver einn aðili leysir með einhverjum hætti. ég held að ríki, sveitarfélög, hjálparstofnanir og aðrir þeir sem eru að sinna þessum málum þurfi að taka þarna höndum saman."
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira