Lífeyrisþegar hjá TR axli sjálfir ábyrgð 5. október 2010 04:00 Mynd/GVA
Vonast er til að draga muni úr röngum greiðslum til lífeyrisþega Tryggingastofnunar ríkisins á næstu árum að sögn Þorgerðar Ragnarsdóttur, framkvæmdastjóra þjónustu- og kynningarsviðs stofnunarinnar. Afar algengt er að gerðar séu leiðréttingar á lífeyrisgreiðslum frá Tryggingastofnun og lenda margir í því að þurfa að endurgreiða. Skýrist það af því að slíkar greiðslur frá stofnuninni eru tekjutengdar. Miðast það við allar skattskyldar tekjur, hvort sem það eru atvinnutekjur, lífeyrissjóðstekjur eða fjármagsntekjur. Líka er horft til alls kyns styrkja sem fólk fær. „Til dæmis ef fólk fær styrki frá Reykjavíkurborg til að breyta húsinu sínu þá skiptir það máli," segir Þorgerður Ragnarsdóttir. Áður fyrr gerði það Tryggingastofnun erfitt fyrir að ýmis opinber kerfi voru ekki samkeyrð. Það er nú breytt. Meðal annars fékk TR aðgang að upplýsingum um fjármagnstekjur fólks 1. janúar 2009. „Það eru aðallega fjármagnstekjur sem trufla. Fjármagnstekjur eru vextir og verðbætur af bankareikningum, ágóði af hlutabréfum, leigutekjur, söluhagnaður af íbúðarhúsnæði sem fólk hefur átt í meira en tvö ár," útskýrir Þorgerður og undirstrikar að samkvæmt lögum þurfi fólk sjálft að henda reiður á slíkum tekjum og áætla fram í tímann. „Þannig að fólkið sem sækir lífeyri hingað ber ábyrgð á að segja okkur frá laununum sínum og öllum tekjum, líka fjármagnstekjum." Þorgerður segir marga ekki gera sér grein fyrir því hvaða tekjur hafi áhrif. „Fólk upplýsir okkur kannski eftir bestu vitund og samþykkir okkar uppástungur um tekjuáætlun en svo gerist eitthvað óvænt hjá þeim. Kannski fær það arf eða eingreiðslu úr lífeyrissjóði og gerir sér ekki grein fyrir að það skipti máli og lætur ekki vita. Þá fær það bakreikning." Að sögn Þorgerðar kynnir Tryggingastofnun með margvíslegum hætti hvernig í pottinn sé búið í þessum efnum. Bæði með útsendum fréttum, auglýsingum og upplýsingaefni á vefnum auk annars. „Fólk kemur og hringir og skrifar og spyr og við svörum eftir bestu getu. Við erum með kynningarfundi alls staðar þar sem er óskað eftir því og boðum líka til slíkra funda sjálf," segir Þorgerður sem sér fram á að smám saman muni draga úr því að lífeyrisþegar fái ranga upphæð greidda. „Við horfum fram til þess að þetta muni minnka vegna þess að við erum með betri upplýsingar." gar@frettabladid.is
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira