Flokkur í skugga styrkja 8. júní 2010 05:00 Nýr varaformaður tekur við af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur á aukalandsfundi flokksins í lok júní. Óvíst er hvort Bjarni Benediktsson fær mótframboð í formanninn. fréttablaðið/anton
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut mun minna fylgi í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum en fyrir fjórum árum. Þar með er þó ekki öll sagan sögð, því flokkurinn bætti sig töluvert frá kosningum til Alþingis í fyrra, en þá galt hann mikið afhroð. Þeir Sjálfstæðismenn sem Fréttablaðið ræddi við eru nokkuð ánægðir með útkomu kosninganna. Þeir eru á einu máli um að ósanngjarnt sé að miða við síðustu sveitarstjórnarkosningar; þá hafi flokkurinn verið í mikilli uppsveiflu í miðju góðæri. Skellurinn hafi komið eftir hrunið og úrslitin nú sýni að flokkurinn sé að endurheimta traust hjá kjósendum. Einn viðmælenda blaðsins orðaði það svo að úrslitin sýndu að flokkurinn hefði lifað hrunið af. Úrslitin í Reykjavík og Akureyri eru þó vonbrigði. Að einhverju leyti má skýra þau með utanaðkomandi áhrifum; Lista fólksins nyrðra og Besta flokknum syðra, en stjórnmálamenn bera engu að síður ábyrgð á niðurstöðunum. Ljóst var að Sigrún Björk Jakobsdóttir var óvinsæl í aðdraganda kosninganna og hún hefur nú sagt af sér. Í Reykjavík var staðan allt önnur. Hanna Birna Kristjánsdóttir nýtur vinsælda í embætti sem borgarstjóri. Mun meiri vinsælda en flokkurinn sjálfur í borginni. Hún er engu að síður oddviti listans og ber að því leytinu ábyrgð á úrslitunum. Styrkjamálin eru stóra málið hjá Sjálfstæðisflokknum um þessar mundir og heimildarmenn blaðsins eru sammála um að hann sé ekki búinn að bíta úr nálinni með þau. Á Alþingi situr Guðlaugur Þór Þórðarson, sem þáði 25 milljónir í styrki, og í Reykjavík Gísli Marteinn Baldursson, sem þáði 10,5 milljónir. Þó aðrir hafi þegið minna er þó víða um umtalsverðar fjárhæðir að ræða. Guðlaugur Þór er sagður ætla að sitja svo lengi sem honum er sætt. Ljóst er að formaðurinn mun trauðla leggja að honum að hætta og því er málið í raun í höndum Guðlaugs sjálfs. Ljóst er að mörgum Sjálfstæðismönnum þykir málið erfitt og nokkurrar reiði gætti í garð Guðlaugs hjá mörgum þeim sem Fréttablaðið ræddi við. Í lok júní verður haldinn aukalandsfundur hjá flokknum og viðmælendur blaðsins telja að styrkjamálin verði áberandi þar. Þá liggur fyrir að skipta verður um varaformann, þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mun segja af sér. Hún hætti einnig tímabundið á þingi, en heimildir herma að hún muni snúa aftur í haust. Illugi Gunnarsson hætti einnig tímabundið á þingi, en hans mál eru óljósari, þar sem beðið er rannsóknar á peningamarkaðssjóðum bankanna. Illugi sat í stjórn Sjóðs 9 hjá Glitni. Kjósa þarf arftaka Þorgerðar Katrínar á aukalandsfundinum. Ólöf Nordal hefur ein lýst yfir framboði, en líklegt er að fleiri geri slíkt hið sama. Þar er Hanna Birna oftast nefnd. Heimildarmönnum blaðsins ber saman um að kona verði kosin í starfið og nafn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur hefur einnig borið á góma. Bjarni Benediktsson tók við sem formaður í kjölfar hrunsins. Tvennum sögum fer af stöðu hans innan flokksins. Stuðningsmenn hans telja að honum hafi gengið ágætlega að endurheimta traust kjósenda. Hann hafi haldið opna fundi víða, þar sem hann fór yfir rannsóknarskýrsluna og svaraði spurningum. Þá þykir sumum ótækt að meta forystu hans eftir svo skamman tíma í embætti. Gagnrýnendur hans telja hins vegar að honum hafi ekki gengið nógu vel að gera upp við fortíðina. Sjálfur hafi hann óheppileg tengsl við ýmsar viðskiptafléttur, sem heimildarmenn blaðsins telja þó að gert hafi verið of mikið úr, og þá hafi hann ekki sýnt skelegga forystu þegar kemur að styrkjamálum. Annað mál er hvort einhver mun bjóða fram gegn Bjarna. Rík hefð er fyrir því innan flokksins að styðja sitjandi formann, þó Davíð Oddsson hafi rofið hana árið 1991. Þá er arftaki Bjarna ekki í sjónmáli. Kristján Þór Júlíusson bauð sig fram gegn honum í fyrra og nokkuð var rætt um að hann endurtæki leikinn. Staða hans þykir hins vegar ekki eins sterk og þá og nefna menn að úrslitin í hans heimabæ, Akureyri, hafi veikt hann. Þá heyrist nafn Árna Sigfússonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, einnig nefnt. Það þykir þó ekki líklegt, þar sem formaður flokksins verði að eiga sæti á Alþingi. Það gæti því farið svo að Bjarni sæti áfram, einfaldlega af því enginn annar fari í framboð.
Mest lesið Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Innlent Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla Innlent „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Innlent Árásarmaðurinn í Minnesota handtekinn Erlent Fyrsta konan sem stýrir MI6 Erlent Lengdist um níu sentímetra og lærði að ganga upp á nýtt Innlent Sagður hafa bannað Ísraelum að drepa æðstaklerkinn Erlent Höfðu samband við frönsku lögregluna vegna andlátanna Innlent Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Innlent Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Innlent Fleiri fréttir „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Lágmarks lokanir í kringum Austurvöll á 17. júní Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Þref á þingi og ráðherra vill bregðast við hækkandi raforkuverði Björgunarsveitir leita Sigríðar áfram Lausir úr haldi grunaðir um líkamsárás á Akureyri Höfðu samband við frönsku lögregluna vegna andlátanna Ný skýrsla: Raforkuverð heimila hafi hækkað um ellefu prósent Verður verkefnastjóri viðburða og grasrótarstarfs hjá Viðreisn Bein útsending: Kynning á þróun raforkukostnaðar og áhrifum á notendur Hvorki bókun 35 né veiðigjöld á dagskrá í dag Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla „Kærkomin ró“ yfir höfuðborgarsvæðinu „Svo bakkarðu upp að línu og þenur drusluna“ Umræða um bókun 35 taki ekki tíma frá öðrum málum Dvalarheimili klárt á Laugarvatni en ekkert gerist í stjórnkerfinu „Lögreglan var ekki að gera það í fyrsta sinn“ Fresta leit að Sigríði Slökktu gróðurelda á Ströndum með aðstoð þyrlu Lengdist um níu sentímetra og lærði að ganga upp á nýtt Sjá meira