Innlent

Gefur ekki tilefni til biðleikja

Ásgeir Beinteinsson, einn fjögurra verkstjóra í sextán manna umbótanefnd Samfylkingar, segist ekki fullyrða fyrirfram að fólk sem hefur gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn þurfi að segja af sér. Það sé hins vegar ekki óhugsandi.
Ásgeir Beinteinsson, einn fjögurra verkstjóra í sextán manna umbótanefnd Samfylkingar, segist ekki fullyrða fyrirfram að fólk sem hefur gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn þurfi að segja af sér. Það sé hins vegar ekki óhugsandi. fréttablaðið/vilhelm
Umbótanefnd Samfylkingarinnar segir í tilkynningu að starf hennar, sem á að vera lokið í október, gefi „hvorki flokknum né einstaklingum innan hans ástæðu til að bíða með að gaumgæfa eigin ábyrgð og stöðu".

Þá segir nefndin að hún muni ekki „fella dóma í einstökum málum". Hins vegar geri hún ráð fyrir að niðurstöður vinnunnar „hafi áhrif á mat flokksins og flokksmanna á stöðu þeirra sem gegna eða hafa gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn".

Ásgeir Beinteinsson, einn verkstjóra nefndarinnar, segir nefndina með þessu ekki vera að fullyrða að fólk þurfi að segja af sér. Mikil umræða hafi hins vegar verið um þetta í samfélaginu.

„Þetta er frekar svar við þeirri umræðu og að ef einhverjum finnst hann þurfa að skoða eigið hlutskipti þá komi þetta starf okkar ekki í veg fyrir það. En við erum ekki byrjuð að draga neinar ályktanir," segir hann.

Nefndin mun skoða hvað stuðlaði að því að flokkurinn sá ekki bankahrunið fyrir. Stjórnarþátttakan, ábyrgð forystumanna flokksins og þeirra sem tóku þátt í prófkjörum hans verður skoðuð. Þá mun nefndin leggja til breytingar á stefnu, skipulagi og starfsháttum flokksins, gefi niðurstöður hennar tilefni til þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×