Innlent

Sláturbólan landlæg í kindum

Veirusýkingin getur valdið talsverðum óþægindum meðan hún er að ganga yfir.
Veirusýkingin getur valdið talsverðum óþægindum meðan hún er að ganga yfir.

„Þessi veirusýking sem kölluð er sláturbóla, smitast af lifandi sauðfé og af sláturdýrum,“ segir Katrín Andrésdóttir, héraðsdýralæknir Suðurlandsumdæmis, sem kveðst hafa fengið staðfestingu á því að óvanalega mikið sé um þessa veirusýkingu í fólki þessa dagana.

Fréttablaðið greindi frá því fyrir helgi að óvenjumargir hefðu leitað á heilsugæsluna á Selfossi vegna sýkingarinnar. Er um að ræða starfsfólk í sláturhúsum sem hefur þá smitast við störf sín.

Katrín undirstrikar að þótt veirusýkingin leggist á fé og geitur þá sé ekki minnsta hætta á að hún smitist eða berist með kjöti.

„Sláturbólan sést oft á fólki í sauðburði á vorin,“ segir Katrín. „Þá er algengt að rúningsmenn fái hana svo og starfsfólk í sláturhúsum. Veiran lýsir sér sem frunsur á lömbum og getur einnig farið í klaufhvarfið á fé og þá valdið tjóni ef sýkingar myndast.

Þessi sjúkdómur hefur verið landlægur í kindum og geitum, en við höfum enga skýringu á þessu að því er virðist aukna smiti í fólki. Sá sem hefur þó einu sinni fengið sláturbólu fær hana ekki aftur, því fólk myndar mótefni gegn veirunni.“- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×