Opinberar stöðuveitingar verði vandaðri Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. október 2010 09:32 Árni Þór Sigurðsson er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Mynd/ Valgarður.
Sérstök nefnd verður skipuð til að móta skýrar reglur um skipan í opinber embætti, verði tillaga fjögurra alþingismanna þess efnis samþykkt. Gert er ráð fyrir að Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, mæli fyrir tillögunni í dag. Í greinargerð með henni kemur fram að opinberar stöðuveitingar séu vandmeðfarnar en veki oft harðar deilur og valdi kærum. Mörg dæmi séu um það að umboðsmaður Alþingis eða kærunefnd jafnréttismála hafi fengið slík mál til umfjöllunar og komist að þeirri niðurstöðu að einstakar stöðuveitingar hafi ekki byggst á málefnalegum sjónarmiðum eins og allar stjórnvaldsákvarðanir verði að gera. Þvert á móti hafi geðþótti eða eigið mat einstakra ráðherra verið látið ráða, jafnvel í tilfellum þar sem sérstakar hæfnisnefndir hafi fjallað um umsóknir og skilað rökstuddu áliti. Það sé staða sem samrýmist ekki sífellt harðari kröfum til opinberrar stjórnsýslu. Flutningsmenn tillögunnar telja að það sé mikilvægt að almenningur beri traust til stjórnsýslunnar og geti reitt sig á að stjórnvaldsákvarðanir eins og opinberar stöðuveitingar standist skoðun þannig að umsækjendur um opinbert starf geti gengið út frá því sem vísu að þeir séu metnir á grundvelli málefnalegra sjónarmiða og þeirra krafna sem gerðar séu til viðkomandi starfs og auglýstar hafi verið. Embætti í dómskerfinu séu sérstaklega mikilvæg í þessu tilliti enda dómsvaldið eitt af grunnstoðum þrískiptingar ríkisvaldsins. Flutningsmenn tillögunnar auk Árna Þórs Sigurðssonar eru Álfheiður Ingadóttir, Eygló Harðardóttir og Magnús Orri Schram. Tillagan hefur tvisvar verið flutt áður á þingi en ekki verið afgreidd.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira