Innlent

Alþingi sett - bein útsending

Alþingi verður sett með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálftvö í dag. Bein útsending verður hér á Vísi. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og flestir alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu þegar klukkan er 25 mínútur gengin í tvö.

Að guðsþjónustu lokinni ganga kirkjugestir til þinghússins.

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands setur síðan 139. löggjafarþing og að því loknu flytur forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, ávarp.

Mörg hundruð manns eru þegar saman komnir á Austurvelli.

Ef útsendingin höktir hér að ofan, geturðu prófað að opna myndstraumin í sér spilara með því að smella hér hér




Fleiri fréttir

Sjá meira


×