Innlent

Ungur háskólanemi bruggar og selur vinum sínum „vöruna“

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Há áfengisgjöld hins opinbera hafa breytt áfengisneyslu landsmanna og heimabruggun færist stöðugt í aukana. Ungum manni ofbauð hátt verð í Vínbúðum ríkisins og nú bruggar hann af miklum móð fyrir sig og vini sína.

Ísland og Noregur eru með hæstu áfengisgjöld sem þekkjast í Evrópu. Norðurlöndin eru með lægri áfengisgjöld, en lægst eru þau í Danmörku og Finnlandi.

Heimabruggun og smygl á áfengi hefur verið vandamál á Íslandi og ljóst er að ákveðin fylgni er á milli áfengisverðs og heimabruggunar og smyglaðs áfengis. Bent hefur verið á að erfitt er fyrir ríkisvaldið að stýra mannlegri breytni og hegðun nema að mjög takmörkuðu leyti. Að undanförnu hafa birst mikið af fréttum um tengsl hás áfengisverðs og aukinnar heimabruggunar. Um daginn auglýsti verslanakeðjan Europris bruggtæki til sölu og þau seldust upp og keðjan þurfti að panta meira, en fólk er í auknum mæli að prófa sig áfram með heimaframleiðslu á léttvínum.

Ungur háskólanemi, sem við skulum kalla „Brynjar" hefur verið að brugga fyrir sig og vini sína því honum ofbauð hátt áfengisverð í Vínbúðunum. Hann er með félaga með sér í „framleiðslunni. „Svo í kjölfarið fórum við og lásum okkur til um heimabruggun og fórum af krafti í þetta," segir maðurinn. Nokkru síðar fóru Brynjar og félagi hans að að brugga sterkt áfengi og urðu sér úti um græjur til þess með leiðum sem hann vill ekki fara nánar út í. Hann segist aldrei hafa farið út í bruggun nema af því að áfengi var svo hátt verðlagt. Hann segir að stjórnvöld hafi líklega gengið of langt í hækkunum.

Brynjar bruggar fyrir sig og vini sína og tappar af á brúsa sem þeir kaupa í heildsölu. Brynjar er fullur sjálfstrausts, enda kynntu þeir félagarnir sér tæknina vel. Hann segir þetta tiltölulega einfalt og að „vodkinn" sem þeir bruggi hafi hlotið góðar viðtökur, en þeir rukka á bilinu eitt til tvö þúsund fyrir lítrann.

„Þetta er enginn smirnoff, en hérna þetta er vel drykkjarhæft. Maður finnur ekkert spírabragð eða neitt," segir hann.

Lítur þú á þig sem landasala? „Nei, alls ekki."

Hvað ertu þá? „Ég er bara ungur námsmaður sem er aðeins að reyna að nota aurana í eitthvað annað og geri vinum mínum greiða og læt þá fá áfengi á töluvert lægra verði."

Líturðu svo á að þú sért að brjóta lög? „Já, svona svart á hvítu. En ég lifi nú þeirri trú að þetta sé á gráu svæði." Brynjar segir að löggjafinn þurfi að setjast yfir áfengislöggjöfina, en að hans mati er hún óskýr.

Brynjar segir að ungt fólk í dag drekki í miklum mæli heimabruggað áfengi. Nánast annar hver maður á Þjóðhátíð hafi haft landa um hönd, eins og hann orðar það. Hann segist ekki skynja að það sé nokkur vínmenning á Íslandi. Eflaust deila fleiri þeirri skoðun hans.


Tengdar fréttir

Brugg og smygl eykst með hærri sköttum

neytendur Helmingur fólks á aldrinum 18 til 29 ára verður var við meira heimabrugg og smygl á áfengi nú heldur en áður. Meira en helmingur fólks kaupir annaðhvort minna áfengi eða ódýrari tegundir.

Áfengisverðið hefur áhrif á vísitölu og vínmenningu

Verð á áfengi hefur hækkað mikið á síðustu árum. Alþingi samþykkti í fyrra breytingar á áfengisgjöldum, sem gerðu það að verkum að gjöldin hækkuðu um rúm fjörutíu prósent á tólf mánuðum.

Skattpíndur sopi

Það er orðið ljóst að ríkisstjórnin gekk of langt með gífurlegum hækkunum á sköttum á áfenga drykki í fyrra. Niðurstaðan hefur orðið sú sem ýmsir spáðu; sala áfengis í ÁTVR hefur minnkað og þannig hefur tekjustofninn sem ríkisstjórnin hugðist skattpína dregizt saman.

Bændur handteknir fyrir brugg

Tveir bændur á sjötugsaldri voru handteknir í Hrunamannahreppi í gær vegna umfangsmikillar landaframleiðslu. Við leit á sveitabænum fundust um 800 lítrar af gambra og 100 lítrar af landa sem lögreglan segir 35% að styrkleika. Að auki fundust mikið magn tækja og tóla sem nauðsynleg eru til landaframleiðslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×