Innlent

Fundað um skuldavanda heimilanna

Lilja Mósesdóttir.
Lilja Mósesdóttir.

Þverpólitísk starfsnefnd Alþingis um skuldavanda heimilanna fundar með fulltrúum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og bankasýslu ríkisins í næstu viku.

Þingmenn ætla að meðal annars að leita svara við því hversu mikið svigrúm bankarnir hafi til afskrifta á lánum en fram hefur komið í fréttum að lán til heimila og fyrirtækja séu skráð á helmingsafslætti í bókum bankanna.

Í starfsnefndinni sitja Lilja Mósesdóttir, vinstri grænum, Unnur Brá Konráðsdóttir, Sjálfstæðisflokki, Guðmundur Steingrímsson, framsókn og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Samfylkingunni. Marinó G. Njálsson í Hagsmunasamtökum heimilanna situr í nefndinni fyrir hönd Hreyfingarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×