Innlent

Keyrði fullur á ljósastaur í Reykjavík

Nóttin var nokkuð róleg hjá lögreglunin í Reykjavík, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra. Fjórir voru teknir grunaðir um ölvun við akstur og tveir gistu fangageymslur vegna ölvunar.

Nokkrir minniháttar pústrar voru í miðbæ Reykjavíkur og voru þeir allir leystir á vettvangi.

Nú undir morgun fékk lögreglan tilkynningu um að maður hafði keyrt á ljósastaur á Vesturlandsvegi, ofan við brúnna við Sæbraut.

Þegar lögregla kom á staðinn var maðurinn töluvert ölvaður og ekki viðræðuhæfur. Hann verður látinn sofa úr sér áfengisvímuna og síðar í dag verður skýrsla tekin af honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×