Innlent

Björgunarsveitamenn skilja hluta af búnaði sínum eftir í Haítí

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Íslensku björgunarsveitamennirnir við komuna til Haítí. Mynd/ Valgarður.
Íslensku björgunarsveitamennirnir við komuna til Haítí. Mynd/ Valgarður.
Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin vann í allan gærdag í rústum Montana hótelsins í Port au Prince en á því hóteli gisti starfsfólk Sameinuðu þjóðanna ásamt fjölskyldum sínum. Unnið var til klukkan sjö í morgun að íslenskum tíma en að því loknu fór sveitin í búðir þar sem hún hvílist nú.

Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg mun sveitin pakka saman í dag þeim búnaði sem hún tekur með heim en hluti hans verður skilinn eftir þar sem hann nýtist sem neyðaraðstoð. Meðal þess sem skilið er eftir er stór hluti búða íslensku sveitarinnar þar sem hann er í notkun sem stjórnstöð aðgerða alþjóðlega hjálparliðsins. Menn telja að húsnæði á svæðinu sé ónothæft og ótraust og því þurfi öll skipulagning og utanumhald hjálparstarfs að fara fram í tjöldum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×