Sveitarfélögin láti reyna á ákvörðun Svandísar fyrir dómstólum 4. febrúar 2010 18:45 Ólafur Áki Ragnarsson.
Bæjarstjóri Ölfuss segir nauðsynlegt að látið verði reyna á það fyrir dómstólum hvort ákvörðun umhverfisráðherra um Þjórsárvirkjanir standist lög. Hann segir þetta mikinn skell á sama tíma og sveitarfélagið sé í viðræðum um sex mismunandi fjárfestingarverkefni. Eftir að síðasta ríkisstjórn markaði þá stefnu, fyrir hönd Landsvirkjunar, að orka neðri Þjórsár skyldi nýtt til annarrar atvinnustarfsemi en nýrra álvera hefur einna helst verið horft til atvinnuuppbyggingar í Þorlákshöfn. Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss, segir að bara frá áramótum hafi komið til þeirra sex aðilar. Það sé að lifna yfir þessu aftur eftir mikla deyfð. "Ég er alveg klár á því að þetta hefur mjög neikvæð áhrif á þá aðila sem eru að skoða sig um hér á svæðinu," segir Ólafur Áki. Spurður um á hvaða sviðum þessir aðilar séu nefnir hann ylræktarver, áliðnað, stálbræðslu, sólarkísilframleiðslu og heilsurækt. Hann spyr um atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar og segir að sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi og á Reykjanesi séu af heilum hug að reyna að byggja upp samfélagið aftur og að reyna að ná inn fyrirtækjum til þess að reyna að skapa atvinnu í landinu og ná fólki út af atvinnuleysisskrá. Þetta sé mikill skellur að ráðherra í ríkisstjórninni skuli ekki einu sinni sýna minnstu burði til að standa með þeim. Ólafur Áki telur að Svandís Svavarsdóttir hefði átt að koma hreint fram. "Ég held að hún hefði bara átt að segja það strax að hún er á móti þessu. Ekki að fara að reyna að búa til einhverja túlkun, sem að mínu mati er mjög á gráu svæði." Hann telur Svandísi fara út fyrir valdsvið sitt, það sé hlutverk dómstóla - ekki ráðherra - að dæma um lögin. Kveðst Ólafur Áki vona að samtök sveitarfélaga taki þetta upp því það sé mjög mikilvægt fyrir sveitarfélögin að fá skýra niðurstöðu í þessu máli. Það sé algerlega óviðunandi að búa við þetta ástand. Hann telji það mjög nauðsynlegt að fara með málið fyrir dómstóla. Það sé mjög mikilvægt að dómstólar taki á þessu en ekki bara að ráðherra geti túlkað þetta eftir sínum hentugleika. Sveitarstjórn Flóahrepps, sem er beinn aðili málsins, gerir í bókun alvarlegar athugasemdir við úrskurð og málsmeðferð Svandísar. Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri Flóahrepps, segir það sína persónulegu skoðun að þetta hafi verið pólitísk ákvörðun, ekki byggð á faglegum sjónarmiðum. Næsta skref sveitarstjórnar verði að funda með lögmanni sínum og taka ákvörðun um framhald málsins.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira