Endurskoðendur gagnrýna Atla og krefjast opinberrar rannsóknar Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. september 2010 12:02 Endurskoðendur föllnu bankanna hafa verið sakaðir um vafasöm vinnubrögð. Mynd/ Kristinn.
Stjórn Félags löggiltra endurskoðenda vill að opinberir aðilar rannsaki þátt endurskoðenda í því efnahagshruni sem varð á seinni hluta ársins 2008. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórninni vegna skýrslu þingmannanefndar Atla Gíslasonar sem skilaði Alþingi skýrslu á laugardaginn. Í yfirlýsingu stjórnarinnar segir að fullyrðingar í skýrslu þingmannanefndarinnar séu hvorki faglegar né viðeigandi vegna þess að ekki liggi fyrir niðurstaða úr rannsókn á störfum endurskoðenda hinna föllnu banka. Þar á stjórn Félags löggiltra endurskoðenda við fullyrðingar um að vinnu endurskoðenda fjármálafyrirtækjanna hafi verið verulega ábótavant, að endurskoðendur hafi brugðist skyldu sinni og að þeir beri mikla ábyrgð á að slæmir viðskiptahættir bankanna og vanvirðing við lög og reglur hafi fengið að viðgangast. Stjórn Félags löggiltra endurskoðenda segir að tilvist endurskoðenda sem stéttar byggist á því að notendur reikningsskila geti treyst því að þeir endurskoðendur sem áriti reikningsskil tiltekinna félaga séu óháðir stjórnendum viðkomandi félaga, að þeir hafi unnið verk sitt af kostgæfni og samviskusemi og fylgt ákvæðum laga um endurskoðendur og öðrum reglum sem gilda um störf þeirra. Án trausts sé áritun endurskoðenda lítils virði. Þess vegna sé mikilvægt að fram fari rannsókn opinberra aðila á því hvort endurskoðendur hinna föllnu fjármálafyrirtækja hafi sinnt starfi sínu af kostgæfni og samviskusemi og farið að þeim lögum og endurskoðunarstöðlum sem gilda um störf þeirra.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira