Innlent

Endurskoðendur gagnrýna Atla og krefjast opinberrar rannsóknar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Endurskoðendur föllnu bankanna hafa verið sakaðir um vafasöm vinnubrögð. Mynd/ Kristinn.
Endurskoðendur föllnu bankanna hafa verið sakaðir um vafasöm vinnubrögð. Mynd/ Kristinn.
Stjórn Félags löggiltra endurskoðenda vill að opinberir aðilar rannsaki þátt endurskoðenda í því efnahagshruni sem varð á seinni hluta ársins 2008. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórninni vegna skýrslu þingmannanefndar Atla Gíslasonar sem skilaði Alþingi skýrslu á laugardaginn.

Í yfirlýsingu stjórnarinnar segir að fullyrðingar í skýrslu þingmannanefndarinnar séu hvorki faglegar né viðeigandi vegna þess að ekki liggi fyrir niðurstaða úr rannsókn á störfum endurskoðenda hinna föllnu banka. Þar á stjórn Félags löggiltra endurskoðenda við fullyrðingar um að vinnu endurskoðenda fjármálafyrirtækjanna hafi verið verulega ábótavant, að endurskoðendur hafi brugðist skyldu sinni og að þeir beri mikla ábyrgð á að slæmir viðskiptahættir bankanna og vanvirðing við lög og reglur hafi fengið að viðgangast.

Stjórn Félags löggiltra endurskoðenda segir að tilvist endurskoðenda sem stéttar byggist á því að notendur reikningsskila geti treyst því að þeir endurskoðendur sem áriti reikningsskil tiltekinna félaga séu óháðir stjórnendum viðkomandi félaga, að þeir hafi unnið verk sitt af kostgæfni og samviskusemi og fylgt ákvæðum laga um endurskoðendur og öðrum reglum sem gilda um störf þeirra. Án trausts sé áritun endurskoðenda lítils virði. Þess vegna sé mikilvægt að fram fari rannsókn opinberra aðila á því hvort endurskoðendur hinna föllnu fjármálafyrirtækja hafi sinnt starfi sínu af kostgæfni og samviskusemi og farið að þeim lögum og endurskoðunarstöðlum sem gilda um störf þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×