Innlent

Umboðsmaður skuldara: Fjölmörgum spurningum ósvarað

Ásta S. Helgadóttir.
Ásta S. Helgadóttir. Mynd / Valgarð

Umboðsmaður skuldara, Ásta S. Helgadóttir, telur fjölmörgum spurningum ósvarað eftir gengisdóminn sem féll í dag.

Meðal annars hvort farið verði í endurreiknað uppgjör á þeim lánasamningum sem töldust uppgerðir að fullu þegar Hæstiréttur dæmdi gengistryggingu ólögmæta með tveimur dómum þann 16. júní sl.

Í tilkynningu frá umboðsmanni skuldara kemur fram að hún telji jákvætt að ríkisstjórnin stefni að jafnræði skuldara með löggjöf sem nái til allra gengistengdra bíla- og húsnæðislána, óháð orðalagi lánasamninga.

Þá fagnar umboðsmaður skuldara því að óvissu hafi nú verið létt af þúsundum heimila með þessum fordæmisgefandi dómi um vexti gengistryggðra lána.

Óvissan um vexti þessara lána hefur reynst skuldurum mjög erfið og tafið það mjög að einstaklingar í greiðsluerfiðleikum geti áttað sig á sinni raunverulegu skuldastöðu og endurskipulagt fjármál sín í samræmi við hana.

Tilkynningu frá umboðsmanni skuldara má lesa hér fyrir neðan.




Tengdar fréttir

Hæstiréttur kveður upp gengisdóm í dag

Það ræðst í dag hvaða vextir verða á gengistryggðum bílalánum. Hæstiréttur dæmir þá í prófmáli, en hann hafði áður dæmt gengistryggingu ólöglega.

Miðað við lægstu óverðtryggðu vexti Seðlabankans

Hæstiréttur Íslands féllst í dag á kröfu Lýsingar sem stefndi manni sem hafði tekið bílalán hjá fyrirtækinu. Ágreiningur var um það við hvaða lánsvexti ætti að miða eftir að Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í júní að gengistrygging lána væri ólögleg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×