Innlent

Hjúkrunarfræðingi dæmdar milljónir

Geðdeild Flytja átti hjúkrunarfræðinginn í starfi frá geðdeild yfir á Klepp.
Geðdeild Flytja átti hjúkrunarfræðinginn í starfi frá geðdeild yfir á Klepp. MYND/E.ól

Landspítalinn hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til þess að greiða hjúkrunarfræðingi, sem starfaði þar, tæpar þrjár milljónir króna vegna tekjumissis.

Upphaf málsins má rekja til ákvörðunar stjórnenda geðsviðs LSH um að færa hjúkrunarfræðinginn milli deilda, haustið 2006. Var ákvörðunin sögð tekin í kjölfar atviks sem gerðist milli umrædds hjúkrunarfræðings og samstarfsmanns heima hjá hjúkrunarfræðingnum eftir starfsmannaboð. Samstarfsmaðurinn leitaði til hjúkrunardeildarstjórans mánudaginn eftir boðið og skýrði frá því að hjúkrunarfræðingurinn hefði sýnt sér kynferðislega áreitni. Kvaðst hann ekki vilja starfa með konunni lengur.

Hjúkrunarfræðingurinn vildi ekki una ákvörðuninni um tilfærslu í starfi, mætti ekki til vinnu eftir að hafa verið kynnt ákvörðunin og varð þar af leiðandi fyrir tekjumissi. Í læknisvottorði kemur fram að síðan hafi konan átt við mikla vanlíðan að stríða og væri óvinnufær. Héraðsdómur hafði í maí 2007 vísað kröfu hennar um ógildingu tilfærslunnar frá dómi. Hæstiréttur ógilti hins vegar umrædda ákvörðun sviðsstjóra og sagði málsmeðferð hafa „einkennst af fádæma hroka“. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×