Ætlast til að bankarnir sætti sig við sanngirnisfrumvarpið Valur Grettisson skrifar 16. september 2010 19:55 Árni Páll Árnason. „
Við ætlumst til þess að lánveitendur sætti sig við þetta," sagði Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, í viðtali í Kastljósinu í kvöld um viðbrögð lánastofnanna, það er að segja bankanna, vegna fyrirhugaðs sanngirnisfrumvarps vegna gengisdóms. Ráðuneytið hyggst leggja frumvarpið fram strax á haustþingi. Frumvarpið mun taka til þeirra flokka lána sem talið er að hafi byggt á ólögmætri gengisbindingu, samkvæmt tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Þar segir jafnframt að samkvæmt útreikningum sérfræðinga Seðlabanka Íslands muni eftirstöðvar þessara lána lækka verulega við breytinguna, t.d. um 25% til 47% fyrir 25 ára lán. „Það er bjargföst trú mín að bankarnir muni axla samfélagslega ábyrgð í þessu máli," sagði Árni Páll spurður hvort hann telji að bankarnir muni sækja rétt sinn í málinu, þá sérstaklega vegna þess að sanngirnisfrumvarpið mun rýra þeirra hag. Aðspurður hvort samkomulag á milli bankanna og ríkisins sé til staðar sagðist Árni Páll ekki svo vera. Hann sagði ráðuneytið hafa kynnt þeim hugmyndirnar og þær hefði lagst vel í forsvarsmenn bankanna. Árni segir það hinsvegar skýlausan rétt almennings að sækja sín mál fyrir dómstólum telji þeir á sér brotið. Árni Páll gerir ráð fyrir því að frumvarpið verði lagt fram strax í næsta mánuði. Hann sagðist ómögulega geta svarað því hvenær frumvarpið yrði samþykkt og sagðist treysta á góða samvinnu innan þingsins vegna málsins.
Tengdar fréttir Húsnæðislánum breytt með löggjöf Efnahags- og viðskiptaráðherra mun setja lög sem tryggir að dómur Hæstaréttar í dag um vexti af lánum nái til allra lána vegna bíla- og húsnæðiskaupa sem tengd eru gengi erlendra gjaldmiðla. Mun lagasetningin taka til þeirra flokka lána sem talið er að hafi byggt á ólögmætri gengisbindingu. Samkvæmt útreikningum sérfræðinga Seðlabanka Íslands munu eftirstöðvar þessara lána lækka verulega við breytinguna, t.d. um 25% til 47% fyrir 25 ára lán. 16. september 2010 17:21 Hæstiréttur kveður upp gengisdóm í dag Það ræðst í dag hvaða vextir verða á gengistryggðum bílalánum. Hæstiréttur dæmir þá í prófmáli, en hann hafði áður dæmt gengistryggingu ólöglega. 16. september 2010 11:30 Svona gætu lánin þróast út frá lagasetningu viðskiptaráðherra Árni Páll Árnason, Efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur boðað löggjöf sem greiðir úr flókinni stöðu og tryggir öllum lántakendum gengisbundinna bíla- og húsnæðislána sömu hagsbót. 16. september 2010 19:21 Miðað við lægstu óverðtryggðu vexti Seðlabankans Hæstiréttur Íslands féllst í dag á kröfu Lýsingar sem stefndi manni sem hafði tekið bílalán hjá fyrirtækinu. Ágreiningur var um það við hvaða lánsvexti ætti að miða eftir að Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í júní að gengistrygging lána væri ólögleg 16. september 2010 16:12 Mest lesið Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin Sjá meira
Húsnæðislánum breytt með löggjöf Efnahags- og viðskiptaráðherra mun setja lög sem tryggir að dómur Hæstaréttar í dag um vexti af lánum nái til allra lána vegna bíla- og húsnæðiskaupa sem tengd eru gengi erlendra gjaldmiðla. Mun lagasetningin taka til þeirra flokka lána sem talið er að hafi byggt á ólögmætri gengisbindingu. Samkvæmt útreikningum sérfræðinga Seðlabanka Íslands munu eftirstöðvar þessara lána lækka verulega við breytinguna, t.d. um 25% til 47% fyrir 25 ára lán. 16. september 2010 17:21
Hæstiréttur kveður upp gengisdóm í dag Það ræðst í dag hvaða vextir verða á gengistryggðum bílalánum. Hæstiréttur dæmir þá í prófmáli, en hann hafði áður dæmt gengistryggingu ólöglega. 16. september 2010 11:30
Svona gætu lánin þróast út frá lagasetningu viðskiptaráðherra Árni Páll Árnason, Efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur boðað löggjöf sem greiðir úr flókinni stöðu og tryggir öllum lántakendum gengisbundinna bíla- og húsnæðislána sömu hagsbót. 16. september 2010 19:21
Miðað við lægstu óverðtryggðu vexti Seðlabankans Hæstiréttur Íslands féllst í dag á kröfu Lýsingar sem stefndi manni sem hafði tekið bílalán hjá fyrirtækinu. Ágreiningur var um það við hvaða lánsvexti ætti að miða eftir að Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í júní að gengistrygging lána væri ólögleg 16. september 2010 16:12