Innlent

Bryndís verður ekki saksóknari

Bryndís Hlöðversdóttir segir að ekki hafi verið leitað til sín um að taka að sér stöðu saksóknara.
Bryndís Hlöðversdóttir segir að ekki hafi verið leitað til sín um að taka að sér stöðu saksóknara.
Bryndís Hlöðversdóttir var einn lögspekinganna sem aðstoðaði þingmannanefnd Atla Gíslasonar við vinnu að þingsályktunartillögum um viðbrögð við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og ákærum gegn fyrrverandi ráðherrum. Eins og kunnugt er var þingsályktunartillaga um að ákæra Geir Haarde samþykkt í dag.

Nú stendur yfir leit að saksóknara og varasaksóknara til þess að sækja málið gegn Geir og samkvæmt heimildum Vísis er horft til sérfræðinga úr nefndinni í því skyni. Bryndís segist ekki hafa verið beðin um að taka starfið að sér. Hún segir jafnframt að hún myndi ekki taka slíkt starf að sér enda hafi hún ekki reynslu af saksóknarastörfum.

Bryndís er aðstoðarrektor við Háskólann á Bifröst. Hún er líka fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar og Alþýðubandalagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×